Góðgerðaruppboð til styrktar Mottumars Starri Freyr Jónsson 27. mars 2015 15:45 Hafþór Júlíus Björnsson með hlýrabolinn.
Bland.is og Netgíró halda um þessar mundir góðgerðaruppboð í tilefni af Mottumars, sem er átaksverkefni Krabbameinsfélags Íslands í baráttunni gegn krabbameini hjá karlmönnum. Uppboðið fer fram á Bland.is og er fjöldinn allur í boði, bæði vörur og einstakir viðburðir. Steindi Jr. og Dóri DNA.Meðal þess sem hægt er að næla sér í má nefna áritaða treyju frá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta. Þá gefur sterkasti maður Íslands, Hafþór Júlíus Björnsson, áritaðan hlýrabol. Treyja íþróttamanns ársins 2014, körfuknattleiksmannsins Jóns Arnórs Stefánssonar verður einnig í boði en hann spilaði í henni á móti Bretum í undankeppni EM í körfubolta. Einnig verður hægt að bjóða í kvöldstund með félögunum Steinda Jr. og Dóra DNA þar sem boðið verður upp á hina landsfrægu Eðlu. Það sama má segja um uppistand með grínistunum Pétri Jóhanni og Auðunni Blöndal.Villi og Sveppi.Þá ætla félagarnir Sveppi og Villi að bjóða upp skemmtidagskrá fyrir barnaafmæli. Allur ágóði af uppboðinu rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Íslands og mun vera nýttur í forvarnir, fræðslu, ráðgjöf og rannsóknir. Upplýsingar um uppboðin eru aðgengileg á Bland.is. Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband fyrir uppboðið þar sem Hafþór Júlíus, eða Fjallið, lætur einn starfsmann Bland finna fyrir því.Hafþór Júlíus gefur áritaðan bol á uppboðiðHafþór Júlíus Björnsson (Hafthor Julius Bjornsson) er mættur á uppboðið!Hann leggur til áritaðan Thor's Power bol sem er merkið hans. https://bland.is/til-solu/fatnadur/karlar/mottumars-hafthor-julius-aritadur-bolur/2705406/Posted by Bland.is on Thursday, March 26, 2015
Mest lesið Drengurinn sem dó Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira