Scottie Pippen: Ég var LeBron James áður en það var til LeBron James Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2015 23:30 Scottie Pippen og Michael Jordan. Vísir/AFP
Scottie Pippen hafði trú á sjálfum sér sem leikmanni og hún hefur ekkert minnkað með árunum hjá þessum sexfalda NBA-meistara með Chicago Bulls. Pippen ákvað að blanda sér aðeins í umræðuna um það hvort að LeBron James eiga skilið sæti við borð bestu leikmannanna í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta. Pippen segir menn eiga að bera LeBron James frekar saman við sig en ólíka leikmenn eins og Michael Jordan eða Magic Johnson. „Ég var LeBron James áður en það var til LeBron James," sagði Scottie Pippen í viðtali við Chris Haynes hjá Northeast Ohio Media Group. „Það vilja allir bera Lerbron James saman við þann besta hvort sem það er Michael Jordan eða Magic Johnson en hann en miklu líkari mér," sagði Pippen. „Það er kannski skiljanlegt að fólk fari hina leiðina en ef að það gefur sér tíma til að skoða hvernig ég spilaði þá er allir fljótir að sjá hvað við eigum svo margt sameiginlegt inn á vellinum," sagði Pippen. Scottie Pippen og Michael Jordan unnu sex NBA-meistaratitla saman en engan í sitthvoru lagi. Pippen lék í ellefu ár með Chicago Bulls en spilaði einnig fyrir Houston Rockets og Portland Trail Blazers. Pippen var með 16,1 stig, 6,5 fráköst og 5,2 stoðsendingar að meðaltali í 1178 leikjum sínum í deildarkeppni NBA. Hann var með 17,5 stig, 7,6 fráköst og 5,0 stoðsendingar að meðaltali í 208 leikjum sínum í úrslitakeppninni. Pippen var með 21,6 stig, 8,9 fráköst, 5,8 stoðsendingar og 2,5 stolna bolta að meðaltali í leik þegar Chicago Bulls vann fyrsta titilinn sinn 1991.
NBA Mest lesið Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Mari uppgefin: „Ældi átta sinnum á brautinni“ Sport Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Fótbolti Sjáðu Kristin Gunnar koma í mark: „Geðveikt skrítin tilfinning“ Sport Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Körfubolti Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu Körfubolti Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Körfubolti Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Íslenski boltinn Sveindís Jane slapp við síðasta sætið á íslenska listanum Fótbolti Fleiri fréttir Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Indiana tók Cleveland í bakaríið „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu „Gerðum hlutina rétt í þessum leik“ Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis KKÍ breytir reglum varðandi erlenda leikmenn „Stoltið sem fylgir því að verja sinn heimavöll verður að vera til staðar“ „Við ætluðum bara ekki að tapa“ Úlfarnir búnir að snúa einvíginu sér í vil Meistararnir á lífi eftir stórsigur í New York „Persónulega fannst mér þær byrja að fagna of snemma“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 94-78 | Njarðvíkingar settu í fimmta gír í seinni „Mikilvægt að okkar uppöldu KR-ingar spili með félaginu“ Hamarsmenn tryggðu sér oddaleik Hristi af sér meiðsli á „ódauðlega“ ökklanum og fagnaði sigri Stóð við stóru orðin og fór í átta klukkutíma göngutúr heim til sín Miðasala á Dúllubar í dag og VIP-miðar á 15.000 krónur „Helmingurinn af liðinu var veikur“ Ægir Þór: Við vorum heilt yfir miklu betri Uppgjör: Tindastóll-Stjarnan 93-90 | Stólarnir með ótrúlega endurkomu í blálokin Deandre Kane áfram með Grindvíkingum Martin flottur þegar Alba Berlín vann lokaleikinn „Myndi frekar vilja hafa þetta svona heldur en þar sem öllum er drullusama“ Ísböð komu í veg fyrir að Haukar yrðu meistarar Önnur endurkoma hjá Knicks og OKC hamfletti Nuggets Reynsluboltinn verður nýliði í Síkinu í kvöld Sjá meira