Ice-forskeytið vinsælt og gamalreynt Jakob Bjarnar skrifar 2. september 2015 10:25 Fjármálaráðherra vissi nákvæmlega hvað hann var að gera þegar hann vildi vekja athygli á sér á erlendum vettvangi en jafnframt vera trúr uppruna sínum.
Sú frétt gærdagsins sem flaug einna hæst var sú af skráningu fjármálaráðherra landsins, Bjarna Benediktssonar á hinn alþjóðlega framhjáhaldsvef Ashley Madison. Eiginkona Bjarna, Þóra Margrét Baldvinsdóttir, greindi frá því að þau hafi í bríaríi skráð sig þar til leiks árið 2008 til að kanna málin en Bjarni greip til notendanafnsins IceHot1. Ekki þurfti neina auglýsingaspekúlanta eða almannatengla til að segja þeim hjónum það að Ice-forskeytið virkar ef Íslendingar vilja vekja athygli á sér á alþjóðlegum vettvangi enda er komin reynsla á það og hefur gefist þeim vel sem vilja vísa til uppruna síns jafnframt. Þarna fetar Bjarni slóðir sem eru troðnar, enda óþarfi að finna upp hjólið. Í þessu tilfelli vísar Ice ekki til íss sem slíks, enda væri það algjör della að tala um ísheitt. Þó sannleikurinn búi að einhverju leyti í mótsögnum lýsir þetta ekki mikilli virkni. (Reyndar hafa sérfræðingar Vísis komist að því að reikningur Bjarna var afskaplega óvirkur en varla var lagt upp með það í upphafi.) Hér vísar forskeytið vitaskuld beint til móðurmoldarinnar Íslands; Iceland. En, meðfylgjandi mynd fer nú um samfélagsmiðlana sem undirstrikar þessi gömlu sannindi. Myndin er samsett og sýnir Bjarna sem IceHot1 og svo þrjá aðra einstaklinga sem notast við Ice-eitthvað. Geir Ólafsson söngvarinn góðkunni hefur notað IceBlue á alþjóðlegum vettvangi með góðum árangri eins og þekkt er. Sú sem náð hefur einna bestum árangri Íslendinga á erlendri grundu, og má eflaust rekja hann að einhverju leyti til þess listamannsnafns sem hún hefur notað, er svo vitaskuld Ásdís Rán: Ice-Queen. Og þá hefur fyrirsætan frá Suðurnesjum, Hulda Lind Kristinsdóttir, vakið verulega athygli fyrir ögrandi myndskeið sín á YouTube en þau birtir hún undir listamannanafninu Ice-Body.
Ashley Madison-lekinn Tengdar fréttir Bjarni Ben setur Twitter á hliðina: „Jólin komu snemma í ár“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og eiginkona hans Þóra Margrét Baldvinsdóttir skráðu sig fyrir forvitnisakir vefinn Ashley Madison sem komst í heimsfréttirnar nýverið. 31. ágúst 2015 13:41 Bjarni kallaði sig IceHot1 á Ashley Madison Fjármálaráðherra skráði sig til heimilis í Flórída á reikningi sínum á framhjáhaldsvefnum. 31. ágúst 2015 13:43 IceHot1 ísinn kominn í sölu Nú hefur ísbúðin Valdís sett ís í sölu sem gengur undir nafninu Icehot1. Um er að ræða ís sem inniheldur hvítt súkkulaði og chilli. 1. september 2015 14:30 Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Kósýkvöld hjá Vogue: Jólavörur og góð kaup Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Bjarni Ben setur Twitter á hliðina: „Jólin komu snemma í ár“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og eiginkona hans Þóra Margrét Baldvinsdóttir skráðu sig fyrir forvitnisakir vefinn Ashley Madison sem komst í heimsfréttirnar nýverið. 31. ágúst 2015 13:41
Bjarni kallaði sig IceHot1 á Ashley Madison Fjármálaráðherra skráði sig til heimilis í Flórída á reikningi sínum á framhjáhaldsvefnum. 31. ágúst 2015 13:43
IceHot1 ísinn kominn í sölu Nú hefur ísbúðin Valdís sett ís í sölu sem gengur undir nafninu Icehot1. Um er að ræða ís sem inniheldur hvítt súkkulaði og chilli. 1. september 2015 14:30
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“