LeBron James róar taugar allra hjá Cleveland Cavaliers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2016 07:00 LeBron James með dóttur sinni. Vísir/Getty
LeBron James hefur staðfest það við forráðamenn Cleveland Cavaliers að hann ætli að spila áfram með liðinu á komandi NBA-tímabili en ESPN hefur þetta eftir heimildarmönnum sínum. LeBron James átti frábært tímabil með Cleveland og fór fyrir liðinu í úrslitakeppninni þar sem félagið varð NBA-meistari í fyrsta sinn. LeBron James er nú í fríi með fjölskyldu sinni. Hann og fjölskyldan hefur verið bæði á Spáni og á Havæeyjum auk þess að eyða tíma í nýja húsinu sínu í Los Angeles. LeBron mun á komandi vikum hitta umboðsmann sinn og fara yfir nýjan samning en hann er ekki flýta sér að ganga frá hlutunum. LeBron James hefur nokkra möguleika. Hann gefur gert eins árs samning eins og undanfarin tvö sumur en það myndi gefa honum 27,5 milljónir dollara í aðra hönd eða 3,3 milljarða íslenskra króna. Velji LeBron James hinsvegar að geta margra ára samning við Cleveland Cavaliers þá á hann möguleika á því að fá 30,8 milljónir dollara á næsta tímabili eða meira 3,7 milljarða íslenskra króna. Með því að gera slíkan samning þá yrði James launahæsti leikmaður NBA-deildarinnar á næsta tímabili. Cleveland Cavaliers á ekki bara eftir að ganga frá samningi við sinn besta mann, LeBron James, heldur er þjálfarinn Tyronn Lue líka með lausan samning. Lue var búinn að gera munnlegan samning þegar hann tók við á miðju tímabili en það var ekki gengið frá neinu. Hann hefur síðan væntanlega hækkað kröfurnar eftir að hann gerði Cleveland-liðið að NBA-meisturum. Cleveland Cavaliers á líka eftir að semja við J.R. Smith en samkvæmt frétt ESPN þá eru miklar líkur á að sá samningur verði undirritaður á næstunni.
NBA Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Trump forseti náðar fimm fyrrum leikmenn Sport Átján ára Íslendingur sigrar heiminn: „Getur farið alla leið“ Sport Lá hreyfingarlaus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið Sport Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Sport Áfrýjar brottvísun af Ólympíuleikunum til Íþróttadómstólsins Sport Ólympíugull og bónorð á sömu Ólympíuleikum Sport Englendingar óttast að Tuchel endi eins og Capello Fótbolti Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúla 1 Fjölskylda Patta kaus að bjóða frekar frítt inn Sport Fleiri fréttir LeBron James elstur til að ná þrefaldri tvennu Uppgjörið: Valur - ÍA 102-85 | Valsmenn aftur á sigurbraut „Ekkert frábær körfuboltaleikur“ Orri: Það bara kviknaði á mér KR - Álftanes | Brosandi bikarmeistarar fögnuðu sigri eftir mikla spennu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 113-103 | Lífið heldur áfram eftir brostinn bikardraum Uppgjör: ÍR - Þór Þ. 75-78 | Þórsarar sóttu gríðarmikilvægan sigur Lifir draumurinn eða raungerist leðjuslagur á botninum? Mun bera vitni gegn gamla kærastanum sem keyrði hvað eftir annað á hana Refsað tvisvar vegna sama brots en vika leið á milli Shabazz á Krókinn Uppgjörið: Grindavík - Valur 66-89| Valur fór afar illa með Grindavík Njarðvík vann nýliðana í framlengingu og Stólarnir sóttu sigur til Þorlákshafnar Tryggvi og félagar fara taplausir áfram LeBron James er útilokaður frá öllum verðlaunum Eins leiks bann og sekt fyrir hnefahöggið Mikið högg fyrir Grindvíkinga Almar og félagar standa einir eftir ósigraðir í háskólakörfunni Keyrði margoft á bíl körfuboltakonunnar Mikilvægur sigur Tindastóls sem fær heimavallarrétt í Evrópu Nýkrýndir bikarmeistarar urðu undir á Meistaravöllum Uppgjörið: Stjarnan 71-74 Haukar | Íslandsmeistararnir tylla sér á toppinn Fjórum hent úr húsi eftir hópslagsmál Ljúft eftir að hafa tapað tveimur úrslitaleikjum í röð Bylting í útsendingum frá íslenskum körfubolta Jókerinn tók fram úr goðsögn Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Martin missir af landsleikjunum Elvar var stiga- og stoðsendingahæstur í sigri Jakob: Geggjað að fá þennan stuðning frá okkar fólki Sjá meira