Manchester United velti Real Madrid úr sessi á toppnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2017 12:30 Paul Pogba og Zlatan Ibrahimovic. Vísir/Getty
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United græddi mest á síðasta tímabili af öllum fótboltafélögum heimsins. United tók fyrsta sætið af spænska liðinu Real Madrid á árlegum samantektarlista Deloitte. Manchester United setti nýtt met með því taka inn 689 milljónir evra tímabilið 2015-16 en það gerir um 83,3 milljarða íslenskra króna. Það var gríðarlega tekjuaukning hjá Manchester United á milli tímabili en hún hækkaði um 100 milljónir evra eða tólf milljarða íslenskra króna. Alls græddu tuttugu best reknu fótboltafélögin 7,4 milljarða evra á tímabilinu en það gerir 895,6 milljarða íslenskra króna og er tólf prósent hækkun frá árinu á undan. Þetta er í fyrsta sinn í tólf ár sem Manchester United er í efsta sæti þessa lista eða síðan tímabilið 2003-04. Real Madrid var búið að vera á toppnum í ellefu ár í röð en missir ekki aðeins fyrsta sætið heldur dettur niður fyrir erkifjendurna í Barcelona og er nú í 3. sæti listans. Þýsku risarnir í Bayern München hækka sig um eitt sæti og eru í fjórða sæti listans og þá er Manchester City í fimmta sæti eftir að hafa hækkað sig um eitt sæti. Englandsmeistarar Leicester City eru inn á listanum í fyrsta sinn en þeir eru í 20. sætinu. Þeir fengu 172 milljónir efra í kassann sem er næstum því fimm sinnum meira en félagið fékk tveimur tímabilum fyrr. Ensku liðin Arsenal (7. sæti), Chelsea (8. sæti), Liverpool (9. sæti) og Tottenham (12. sæti) halda öll sætum sínum og West Ham er síðan í átjánda sætinu.BBC segir frá og birtir allan topplistann hér.Vísir/Getty
Enski boltinn Fótbolti Ítalski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Aldrei spilað þarna en sagði strax já Enski boltinn Fleiri fréttir Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sunderland - Leeds | Nýliðaslagur í norðrinu Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Sjá meira