Innflutningur lífrænna vara frá Íslandi leyfður á ný Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. mars 2017 11:00 Með ákvörðuninni lýkur átta ár töf á meðan lífrænir framleiðendur hér á landi og í Noregi fylgdu úreldum reglum sem áttu ekki lengur við innan ESB. vísir/vilhelm
Lífrænar afurðir frá Íslandi og Noregi, þar með talinn lífrænn norskur lax, má frá og með morgundeginum aftur flytja inn til landa Evrópusambandsins og markaðssetja í samræmi við reglur ESB um lífræna framleiðslu. Þetta er ákveðið í kjölfar þess að viðeigandi reglugerðir voru innleiddar í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Í tilkynningu frá framkvæmdastjórn ESB segir að lengi hafi verið beðið eftir þessari ákvörðun sem tekin er í dag af sameiginilegu EES-nefndinni. Með ákvörðuninni lýkur átta ár töf á meðan lífrænir framleiðendur hér á landi og í Noregi fylgdu úreldum reglum sem áttu ekki lengur við innan ESB. Í kjölfarið getur innflutningur lífræns lax frá EES-löndunum, sem framleiddur er og vottaður í samræmi við reglugerðir ESB, haldið áfram frá og með 18. mars 2017. Hér að neðan má lesa tilkynningu framkvæmdastjórnar ESB í heild sinni:Lífrænar afurðir frá Noregi og Íslandi, að meðtöldum lífrænum norskum laxi, má frá og með morgundeginum aftur flytja inn til Evrópusambandsins og markaðssetja í samræmi við reglur ESB um lífræna framleiðslu. Þetta hefur verið ákveðið vegna innleiðingar viðeigandi reglugerða í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES).Lengi hefur verið beðið eftir ákvörðuninni sem sameiginlega EES-nefndin tekur í dag. Þar með lýkur 8 ára töf, á meðan lífrænir framleiðendur í Noregi og á Íslandi fylgdu úreldum reglum sem ekki áttu lengur við innan ESB. Í kjölfar innleiðingar þessarar ákvörðunar getur innflutningur lífræns lax frá EES-löndunum, sem framleiddur er og vottaður í samræmi við reglugerðir ESB, haldið áfram frá og með 18. mars 2017.Framkvæmdastjóri ESB á sviði landbúnaðar og byggðaþróunar, Phil Hogan, fagnaði ákvörðun dagsins:„Það gleður mig að sjá að félagar okkar innan EES gerðu sér grein fyrir mikilvægi sameiginlegra staðla, og ávinnings framleiðenda og neytenda af þeim beggja vegna borðsins. Reglurnar tryggja lífrænum framleiðendum innan ESB og EES jafnan samkeppnisgrundvöll, báðum til hagsbóta. Framkvæmdastjórnin mun aldrei fallast á að útvatna þær ströngu kröfur sem við gerum til afurða sem eru framleiddar, fluttar inn og markaðssettar sem lífrænar. Það er hlutverk okkar að tryggja traust neytenda og trúverðugleika lífrænnar merkingar ESB.“Evrópusambandið setti fyrst reglur um lífræna framleiðslu og merkingar árið 1991 en uppfærði þær árið 2007, að mörgu leyti með strangari viðmiðum. Síðar, árið 2009, voru kynntar til sögunnar viðbótarreglur um framleiðslu, ekki síst um lífrænt fiskeldi. Töf við innleiðingu nýju reglnanna innan EES-samningsins skapaði ósanngjarnar aðstæður fyrir framleiðendur og aðra aðila á markaðnum.Töfin þýddi að fiskeldisafurðir frá þessum löndum var ekki unnt að flytja inn og selja sem lífrænar innan ESB. Þetta hafði afleiðingar fyrir EES löndin, sem og fyrir innflytjendur og vinnslustöðvar innan ESB. Þetta var sér í lagi vegna reglna ESB um fiskeldi sem gilda um framleiðslu og vottun lífræns lax, og urðu ófrávíkjanlegar í janúar 2015.Stofnanir EES töfðu innleiðingu nýju reglnanna vegna útistandandi beiðna um undanþágur frá ákveðnum tæknilegum atriðum, til dæmis um notkun fiskimjöls til fóðurs jórturdýra og um ákveðinn sveigjanleika við merkingar. Þessar beiðnir hafa nú verið dregnar til baka.BakgrunnurLífræn framleiðsla, ásamt verndun upprunamerkinga fyrir vín og áfenga drykki, eru einu hlutar löggjafar ESB um sameiginlega landbúnaðarstefnu sem falla undir gildissvið EES-samningsins. Þessi samningur, sem tók gildi 1. janúar 1994, sameinar aðildarríki ESB og EES-ríkin þrjú - Ísland, Liechtenstein og Noreg - í einum markaði. Hann gerir ráð fyrir tafarlausri innleiðingu allra réttargerða ESB sem falla undir gildissvið hans. Töf við innleiðingu þýddi í þessu tilfelli að EES-löndin héldu áfram að fylgja lífrænum framleiðsluviðmiðum ESB frá árinu 1991. Innleiðing reglna ESB leiðir til formlegrar, gagnkvæmrar viðurkenningar á reglunum og fylgni við þær, og ryður brautina fyrir innflutning og sölu lífrænna afurða frá EES sem slíkra innan ESB. Matvælalöggjöfin gildir ekki í Lichtenstein. Innleiðing og afrakstur hennar varðar því aðeins Ísland og Noreg.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira