Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Lovísa Arnardóttir skrifar 7. október 2026 20:02 Á myndinni eru: Teodora Ilic, viðskiptafræðingur, Dejan Hrnjak, sérfræðingur í vefhönnun, Milos Petrovic, dósent í íþróttafræði við Háskóla Íslands, Ljubica Zivojinovic, verkefnastjóri og iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur, Nevena Novakovic, kennari og Mladen Zivanovic, stærðfræðikennari. Öll mótmæla þau framgöngu serbneskra stjórnvalda í aðdraganda þingkosninga. Aðsend Serbar á Íslandi segja serbnesk stjórnvöld meina þeim að opna kjörstað og þannig koma í veg fyrir að þeir geti nýtt kosningarétt sinn í þingkosningum sem fara fram síðar í október. Samkvæmt lögum eigi aðeins að þurfa 100 undirskriftir og viðeigandi húsnæði til að opna kjörstað. Það hafi allt verið til en stjórnvöld í Serbíu hafi hafnað umsókn þeirra og vísi þeim á að fara í næsta sendiráð að kjósa, sem er í Osló. „
Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög gera kröfu um. Engu að síður hafa yfirvöld í Serbíu neitað okkur um að opna kjörstað hér, sem sviptir mörg okkar lýðræðislegum kosningarrétti þar sem næsta sendiráð er í Osló,“ segir stærðfræðikennarinn Mladen Živanović en hann hefur verið búsettur á Íslandi síðustu ellefu árin og er í dag kennari við Landakotsskóla. Hann segir fjölda Serba ólman í að taka þátt í kosningunni því fólk vilji koma Serbneska framfaraflokknum, SNS, frá völdum. Hann hafi verið við völd síðustu fjórtán árin og sé ein helsta ástæða þess að hann flutti frá Serbíu. Flokkurinn sé spilltur og hafi ekki að hans mati hagsmuni almennings að leiðarljósi í ákvörðunum sínum. Kjörstjórn Serbíu tilkynnti nýlega að utankjörfundarkosning eigi aðeins að fara fram á sama tíma erlendis og kosning fer fram í Serbíu auk þess sem kjörstjórnin samþykkti aðeins takmarkaðan fjölda kjörstaða erlendis. Það hefur gert stórum hluta brottfluttra Serba erfitt fyrir að kjósa. Ákvörðunin þýðir, til dæmis, samkvæmt frétt ABC, að kjósendur í Chicago, þar sem stórt serbneskt samfélag býr, þyrftu að greiða atkvæði á milli klukkan eitt að nóttu og tvö síðdegis, og Serbar í hlutum Ástralíu og Nýja-Sjálands þyrftu að mæta á kjörstað, sem yfirleitt er komið upp í sendiskrifstofum og öðrum skrifstofum, til að kjósa að næturlagi. Þúsundir á Íslandi sem fái ekki að kjósa Samkvæmt gögnum Þjóðskrár voru í upphafi árs búsettir 247 Serbar á Íslandi en voru 161 í upphafi árs 2019. Þeim hefur því fjölgað töluvert síðustu árin. Mladen segir fjöldann þó nærri þúsundum. Hér sé fjöldi stúdenta, fólk með dvalarleyfi og sumir með tvöfaldan ríkisborgararétt í Króatíu og Serbíu sem ekki séu endilega skráðir hjá Þjóðskrá. Þingkosningar fara fram í Serbíu þann 25. október. Kosningarnar áttu að fara fram í desember upprunalega en Aleksandar Vučić fyrrverandi forseti boðaði til kosninga í upphafi septembermánaðar. Hann sagði svo af sér um tveimur vikum síðar. Hann hafði setið sem forseti frá árinu 2014 og voru sjö mánuðir eftir af fimm ára kjörtímabilinu sem hófst árið 2017 þegar hann tilkynnti afsögn sína. Vučić sagði af sér í kjölfar mikilla mótmæla sem hafa í raun staðið allt frá því að jánrbrautarstöð hrundi í nóvember fyrir tveimur árum með þeim afleiðingum að sextán létust og tugir slösuðust. Járnbrautarstöðin var í borginni Novi Sad og hrundi í nóvember árið 2024. Járnbrautarstöðin var reist árið 1964 og hófst endurnýjun á henni 2021. Mótmælendur hafa meðal annars krafist þess að einhver axli ábyrgð á harmleiknum. Mótmælendur töldu að slysið endurspeglaði meira en áratug af stjórnartíð flokks Vučić, sem talaði mikið fyrir endurbættri stöð, en endurbæturnar áttu að vera tákn um framfarir í Serbíu. Serbía á krossgötum Í erlendum miðlum er talað um að nú, tveimur árum síðar, sé Serbía á krossgötum og vilji fólks til að kjósa sér ríkisstjórn sem ekki sé spillt sé mikill. Í erlendum miðlum kemur jafnframt fram að orsök hrunsins sé enn til rannsóknar en hrun lestarstöðvarinnar leiddi af sér fjölda mótmæla sem enn eiga sér stað. Stúdentar hafa leitt mótmælin og fylking þeirra tilkynnti svo, eftir að Vučić boðaði til kosninga, að þau ætluðu að bjóða fram sinn eigin flokk í kosningunum. Mladen segir það að stjórnvöld hafni því að opna kjörstað á Íslandi valda fólki af serbneskum uppruna sem býr hér á Íslandi miklum áhyggjum og snerti samfélag þeirra með beinum hætti. „Þrátt fyrir að bæði tilskilinn fjöldi kjósenda og fullbúið húsnæði liggi fyrir hafa kosningayfirvöld neitað að samþykkja kjörstaðinn,“ segir hann. Samkvæmt opinberum kosningareglum sé heimilt að opna opinberan kjörstað ef að minnsta kosti 100 manns skrá sig til að kjósa á tilteknum stað erlendis. Hann segir að með því að vísa fólki til sendiráðsins í Osló geti fæstir nýtt kosningaréttinn. „Gríðarleg fjarlægð okkar frá Ósló, þar sem næsta serbneska sendiráð er staðsett, gerir flestum okkar ókleift að ferðast þangað og nýta okkur þann grundvallarrétt í lýðræðisríki að styðja fólkið okkar heima fyrir.“ Mladen segir að ekki sé í boði fyrir kjósendur að senda atkvæðið til Osló, atkvæðinu verði að vera skilað beint í kassann. Hann segir Serba þannig í raun aðeins geta farið til Ósló að kjósa því að með því að skrá sig til utankjörfundaratkvæðagreiðslu hafi þeir fyrirgert rétti sínum til að kjósa í Serbíu. Þeir geti því heldur ekki farið heim til að kjósa. Um 107 þúsund manns víða um heim hafi skráð sig í utankjörfundaratkvæðagreiðslu en miðað við þá kjörstaði sem hafi verið samþykktir geti aðeins um 70 þúsund þeirra raunverulega greitt atkvæði. „Eftir eru þá 37 þúsund sem myndu þurfa að ferðast mjög langa leið til að kjósa.“ Vilja skapa þrýsting Hann segir kjörstjórn í Serbíu eiga að funda með lögfræðingum stjórnarandstöðunnar í dag um þessa stöðu og þess vegna vilji hópurinn sem hefur reynt að opna kjörstað hér reyna að skapa þrýsting. „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa, sem er í lögum,“ segir hann og að það myndi hjálpa verulega ef stjórnvöld á Íslandi myndu styðja kröfu þeirra um að fá að opna kjörstað. Það snúist ekki um að styðja stjórnarflokk eða stjórnarandstöðu heldur rétt fólks til að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að kjósa. Hann telur að Ísland muni koma upp á fundi kjörstjórnar. „Ísland hefur reglulega komið upp í umræðu vegna erfiðrar landfræðilegrar legu sinnar. Það ætti að vera kjörstaður hér því það er svo langt í næsta sendiráð. „Svo hefur fólk almennt mjög mikinn áhuga á þessum kosningum og vill nýta atkvæðisrétt sinn.“ Hann segir þetta kjörstaðamál ekki einsdæmi um það að SNS reyni að misnota vald sitt með því að ógna eða hræða. Hann hafi áður séð um að kenna serbneskum börnum kyrilisku og um menningu Serba en skyndilega verið rekinn í maí. „Í menntakerfinu okkar í Serbíu er til áætlun um kennslu serbneskra barna erlendis. Kennarar eru skipaðir í ýmsum löndum og þeir kenna síðan serbneskum börnum kyrillískt letur, menningu, tungumál og sögu. Ég sinnti því í tvö ár og síðan kom umsjónarmaður áætlunarinnar, sem vinnur með öllum kennurunum um allan heim, óboðuð í tíma til mín til að gera eftirlit.“ Heimsóknin mikið högg Mladen segir þessa óboðuðu heimsókn hafa verið högg. „Við vorum aðeins með 15 nemendur og þetta var í raun ekki eftirlit, því í eftirliti situr manneskja aftast í kennslustofunni, fylgist með því sem kennarinn gerir og skilar síðan skýrslu. En það sem hún gerði var að hún spjallaði við nemendurna í hranalegum tón og sumir þeirra urðu svolítið hræddir við það hvernig hún talaði við þá. Sumir foreldranna voru mjög ósáttir við að börnin þeirra kæmu þannig heim og eitt barnið vildi ekki koma aftur í tíma. Og á endanum ráku þau mig.“ Mladen segist hafa gert athugasemdir við menntamálaráðuneytið í Serbíu í kjölfar skoðunarinnar og þá sérstaklega af hverju hann hafi ekki verið látinn vita af henni. Ráðuneytið hafi í svörum sínum vísað til þess að þau hafi heimild til að fara í skoðun án þess að láta vita fyrir fram. „Þannig að það eru nokkur atriði sem eru að gerast í serbneska samfélaginu hérna. Þess vegna eru margir mjög ákafir í að fá að greiða atkvæði og eru líka brjálaðir út í stjórnvöld af því að þau eru að pirra fólk jafnvel utan Serbíu.“ Eins og kom fram að ofan áttu kosningarnar upprunalega að fara fram í desember. Mladen segir því vinnu hópsins um að opna kjörstað á Íslandi því löngu hafna og þau hafi unnið að því að safna undirskriftum allt frá því í mars, áður en boðað er til skyndikosninga. Þau hafi auk þess fundað með sendiherranum í júní en fengið misvísandi leiðbeiningar þar um fyrirkomulagið við utankjörfundaratkvæðagreiðsluna. Hann segir þau hafa fundið tvo staði sem gætu komið til greina sem kjörstaðir og leyfi frá báðum en stjórnvöld í Serbíu hafi hafnað þeim. Kjörsókn erlendis ekki stjórnvöldum í hag Mladen segir að á stuðningsfundi á sunnudaginn, sem skipulagður var af einstaklingum sem berjast fyrir mannréttindum og réttindum brottfluttra, hafi sérstaklega verið bent á hversu landfræðilega einangrað Ísland er frá næsta serbneska sendiráði eða sendiskrifstofu. „En þetta mál nær út fyrir Ísland. Mikil kjörsókn meðal Serba erlendis er almennt ekki stjórnvöldum í hag og þess vegna er markvisst verið að reisa hindranir til að bæla niður atkvæði erlendis frá,“ segir hann en í serbneskum miðlum má sjá að reglur utanríkisráðuneytisins um utankjörfundaratkvæðagreiðslu megi koma til með að hafa veruleg áhrif á tugi þúsunda kjósenda sem séu búsettir í, til dæmis, Rúmeníu, Búlgaríu, Tyrklandi, Slóvakíu og Katar. Milos Petrovic, dósent í íþróttafræði við Háskóla Íslands, og Ljubica Zivojinovic, verkefnastjóri og iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur, taka undir með Mladen. „Þetta er alvarlegt brot á grundvallarlýðræðisréttinum til að kjósa. Það að ætlast til þess að serbneskir ríkisborgarar búsettir á Íslandi ferðist yfir hafið til Óslóar til að greiða atkvæði kemur í raun í veg fyrir að margir þeirra geti nýtt sér þann rétt og vekur alvarlegar áhyggjur af því að kjósendur séu kerfisbundið fældir frá því að láta pólitískan vilja sinn í ljós. Þegar borgurum erlendis er ekki tryggður raunhæfur möguleiki á að kjósa er fullkomlega réttmætt að efast um lýðræðislegt eðli slíks kerfis,“ segir Milos. Myndin er tekin á mótmælum stúdenta í maí í fyrra en mikil fjöldi safnaðist þá saman til að kalla eftir því að kosningar myndu fara fyrr fram.Vísir/EPA Ljubica segir hindranir sem Serbar sem búi erlendis mæta af fjölbreyttum toga. Það sé flókið skrifræði og viðkomandi stofnanir í Serbíu afar seinfærar. „Ísland er skýrt dæmi um þetta, þar sem borgurum var synjað um kjörstað þrátt fyrir að búið væri að safna öllum nauðsynlegum skráningum og uppfylla öll skilyrði. Svipuð staða kom upp í mörgum öðrum borgum víða um heim þar sem kjörstaðir voru einfaldlega ekki opnaðir. Þótt milljónir borgara búi erlendis neyðir skortur á öðrum leiðum, svo sem póstkosningu, fólk til að ferðast klukkustundum saman til að komast að næsta sendiráði“ Hún segir brottflutta Serba eina mestu ógnina við núverandi stjórnvöld. „Þess vegna dregur ríkisstjórnin kerfisbundið úr kjörsókn Serba erlendis til að lágmarka áhrif þeirra á niðurstöður kosninga. Á sama tíma byggir Serbneski framsóknarflokkurinn (SNS) kosningabaráttu sína heima fyrir á hótunum við kjósendur og á því að ala á ótta við Vesturlönd. Þá greiðir stjórnin einnig beint fólki sem stendur höllum fæti fjárhagslega og beitir það þrýstingi og þvingunum. Með því að beita kjósendur þrýstingi heima fyrir og takmarka jafnframt möguleika Serba erlendis til að kjósa verður kosningaferlið í grundvallaratriðum ósanngjarnt,“ segir hún. Vísa fullyrðingum á bug Í tilkynningu serbneska utanríkisráðuneytisins um málið fyrr í október er fullyrðingum Stúdentaflokksins um hindrun yfirvalda í kosningunum vísað á bug. Þar kemur fram að til þess að ríkisborgari lýðveldisins Serbíu, sem dvelur tímabundið erlendis, geti nýtt kosningarétt sinn þurfi hann að hafa skráð lögheimili í lýðveldinu Serbíu og vera skráður í sameinuðu kjörskrána, og leggja fram beiðni um skráningu í kjörskrá í gegnum næstu sendiskrifstofu eða ræðisskrifstofu þar sem fram kemur að hann muni kjósa erlendis. „Sendiráðið eða ræðisskrifstofan framsendir síðan beiðnina rafrænt í gegnum upplýsingakerfið til viðkomandi sveitarfélags eða borgarstjórnar, sem hefur heimild til að taka ákvörðun um beiðni um að kjósa erlendis,“ segir í tilkynningu þeirra sem birt var 1. október. Myndin er tekin á mótmælum stúdenta í maí á þessu ári í Belgrad. Fjöldi mótmæla hefur farið fram síðustu tvö ár. Vísir/EPA Þar kemur einnig fram að frestur til þess að skila umsókn um að kjósa erlendis hafi runnið út á miðnætti þann 3. október að Belgradtíma en Belgrad er höfuðborg Serbíu. „Sendiráða- og ræðisnet okkar vinnur af fullum krafti að þessu verkefni á hverjum degi til að afgreiða allar innkomnar beiðnir, eins og sést á því að ákvarðanir eru tvöfalt fleiri en í síðustu kosningum, svo það er alls ekkert rými fyrir útbreiðslu ósannra sagna um meinta hindrun. Þeir sem vilja setja alla þjóðina á „hunsa“ gætu lært eina af elstu meginreglunum sem réttarkerfið byggir á, Ignorantia iuris nocet eða vanþekking á lögum er skaðleg. Þótt maður hafi hátt þýðir það ekki að maður hafi rétt fyrir sér. Raunar er hið gagnstæða oft raunin,“ segir að lokum.
Serbía Tengdar fréttir Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Ítrekað er ráðist að fjölmiðlafólki í Serbíu með ofbeldi. Ritstjóri á nær einu frjálsu sjónvarpsfréttastöð landsins biðlar til Evrópuríkja um að fordæma aðför ráðamanna að fjölmiðlafrelsi. Forseti Serbíu freisti þess að ná stjórn á miðlinum. 26. október 2025 20:02 Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Æðstu embættismenn Evrópusambandsins fordæmdu í dag útför Ratko Mladic, stríðsglæpamanns úr Bosníustríðinu sem hlaut viðurnefnið „Slátrarinn“. Nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn Serbíu tóku þátt í athöfninni og hermenn fylgdu kistu stríðsglæpamannsins. 8. september 2026 14:25 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira
Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Ítrekað er ráðist að fjölmiðlafólki í Serbíu með ofbeldi. Ritstjóri á nær einu frjálsu sjónvarpsfréttastöð landsins biðlar til Evrópuríkja um að fordæma aðför ráðamanna að fjölmiðlafrelsi. Forseti Serbíu freisti þess að ná stjórn á miðlinum. 26. október 2025 20:02
Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Æðstu embættismenn Evrópusambandsins fordæmdu í dag útför Ratko Mladic, stríðsglæpamanns úr Bosníustríðinu sem hlaut viðurnefnið „Slátrarinn“. Nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn Serbíu tóku þátt í athöfninni og hermenn fylgdu kistu stríðsglæpamannsins. 8. september 2026 14:25