Grunaður um kynferðisbrot gegn fimm ára stúlku Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. mars 2017 17:39 Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi vegna málsins. vísir/getty
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál manns sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega gegn fimm ára gamalli stúlku á heimili stúlkunnar og móður hennar en maðurinn er fyrrverandi sambýlismaður móðurinnar. Að því er fram kemur í greinargerð lögreglu, sem birt er á vef Hæstaréttar vegna úrskurðar Héraðsdóms Reykjaness um að heimila lögreglu að skoða síma mannsins, á stúlkan að hafa lýst því fyrir móður sinni að maðurinn ogh hún og maðurinn hafi tekið niður buxurnar og nærbuxurnar líka. Hún hafi sett putta á/í rassinn á manninum hann hafi fengið að skoða rassinn á henni. Móðurinni brá en spurði dóttur sína hvort henni hafi fundist þetta óþægilegt og svaraði hún þá neitandi. Konan og maðurinn slitu sambúð undir lok febrúar en maðurinn á í tvígang að hafa verið einn með stúlkunni, annars vegar þann 24. janúar síðastliðinn og hins vegar þann 17. febrúar síðastliðinn. Maðurinn var handtekinn þann 10. mars og færður til skýrslutöku hjá lögreglu. Hann neitaði því að hafa látið stúlkuna stinga fingri í endaþarm hans og að hafa skoðað á henni rassinn. Í greinargerð lögreglu segir svo: „Þegar hann var spurður að því hvort eitthvað annað hefði gerst lýsti hann því að í janúar sl. hefði hann verið að passa brotaþola að kvöldi til. Hann hefði verið að koma henni í rúmið og brotaþoli hefði viljað sofa nakin eins og móðir hennar gerði alltaf. Þau hefðu svo lagst saman í rúm hennar en hann hefði verið í nærbuxum og bol. Hann kvaðst hafa lesið fyrir hana einhverja bók en að lestri loknum hefði brotaþoli tekið hönd hans og beðið hann um að koma við kynfæri hennar því henni þætti það svo gott. Kvaðst hann aðeins hafa komið við kynfærin á henni en síðan tekið hönd sína í burtu og sagt við brotaþola að hann ætti ekki að koma við hana þarna. Hún hefði þá endurtekið að henni þætti gott að láta koma við sig á þessu svæði. Kvaðst hann ekki hafa sagt móður brotaþola frá þessu atviki.“ Þá var hann einnig spurður að því hvort eitthvað annað hefði gerst á milli þeirra og sagði hann frá því að í eitt sinn þegar móðir stúlkunnar hafi verið orðin of sein til vinnu og því beðið hann um að aka stúlkunni í leikskólann. „Brotaþoli hefði komið inn í svefnherbergi til hans eftir að móðir var farin þar sem hann lá nakinn í rúminu. Brotaþoli hafi þá sett hendur sínar á rasskinnar kærða en hann ekki beðið hana um að taka hendurnar af honum. Brotaþoli hefði síðan beðið hann um að skoða á sér rassin því hana klæjaði. Hún hefði tekið buxur sínar niður og legið í hjónarúminu með rassinn upp. Hann kvað brotaþola hafa verið illa skeinda og hann hefði því farið fram og náð í blautan pappír og þrifið henni. Brotaþoli hefði talað um að henni þætti gott að láta snerta sig þarna.“ Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 11. mars sem rann út á mánudaginn. Lögreglan óskaði eftir því að fá að kanna innihald farsíma hans en hann neitaði lögreglu um það. Því var farið fram á dómsúrskurð varðandi það og heimilaði héraðsdómur lögreglu að leita í símanum. Maðurinn kærði úrskurðinn til Hæstaréttar sem vísaði kærunni þá frá þar sem rannsókn lögreglu á innihaldi farsímans hafði þegar farið fram.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira