Forstjóri HB Granda: „Við erum ekkert í neinum leik“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. mars 2017 09:48
Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, segir að verði yfir það í dag hvort að áform bæjarstjórnar Akraness um uppbyggingu á hafnarsvæði bæjarins breyti einhverju um þær fyrirætlanir útgerðarinnar að flytja landvinnslu botnfisks frá Skaganum og til Reykjavíkur. Alls starfa 93 í vinnslunni á Akranesi og herma heimildir fréttastofu að þeim verði öllum sagt upp þegar vinnslan flyst til höfuðborgarinnar. Forstjórinn ræddi þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun og var þar meðal annars spurður hvað honum þætti um fyrirsögn Fréttablaðsins í dag þar sem stóð „Útspil HB Granda heppnaðist.“ „Við erum ekkert í neinum leik, það er alls ekkert þannig,“ sagði Vilhjálmur og þvertók fyrir að það væri eitthvað viðskiptatrikk að tilkynna um flutning vinnslunnar frá Akranesi.Vill ekki gefa upp hversu mikið sparast við að flytja vinnsluna „Við erum núna að flytja landleiðina 7300 tonn af þorski í fyrra og 78 þúsund tonn að flytja landleiðina til Akraness til vinnslu. Eins og staðan er núna erum við að flytja allan þennan þorsk til baka [...] ýmist til Reykjavíkur eða út á Reykjanes. Þannig að þetta er einfaldlega bara mjög augljós hagræðingaraðgerð sem við eigum möguleika á að gera og erum búin að lýsa yfir áformum um að fara í.“ Aðspurður vildi Vilhjálmur ekkert gefa upp um það hvað fyrirtækið myndi spara sér mikið á því að flytja vinnsluna. „Við getum í sjálfu sér ekkert verið að tína út svona tölur úr rekstri það segir sig alveg sjálft að það kostar all nokkuð að flytja allan þennan afla fram og til baka. Við vitum allar tölur en við erum hins vegar skráðir í Kauphöll á markaði og getum ekki verið að tína út einstakar tölur úr rekstrinum,“ sagði Vilhjálmur. Því var þá velt upp af þáttastjórnanda hversu mikils virði vinnslan væri fyrir Akranes og samfélagið þar. „Þetta náttúrulega hefur mikla þýðingu fyrir Akranes og við gerum okkur alveg grein fyrir því að þetta er grafalvarleg staða sem við erum í. Ég lít hins vegar á þetta sem varnarleik til að halda vinnslunni í landinu einfaldlega, það er bara farið að þrengja mjög að vinnslu,“ sagði Vilhjálmur.Á sjávarútvegurinn að skila arðsemi eða á hann að vera til ölmusu? Í gær var greint frá því að komið hefði til tals að útgerðarfyrirtækin myndu flytja vinnslu úr landi og vakti það nokkur viðbrögð enda ekki allir par hrifnir af því að þeir sem veiði fiskinn, auðlind þjóðarinnar, fari með hann úr landi og vinni hann þar. Um þetta sagði Vilhjálmur: „Já, já, þetta er alltaf þessi spurning um það hvers er ætlast til af sjávarútveginum – á hann að skila arðsemi til þjóðarbúsins eða á hann að vera til ölmusu?“ Vilhjálmur sagði að í rekstri væri ríkasta samfélagslega ábyrgðin sú að hann geti gengið. Það væri samfélagslega óábyrgt hins vegar að vera í rekstri sem gengur ekki. Fyrir liggur að HB Grandi hyggst greiða hluthöfum sínum 1,8 milljarða í arð af rekstri seinasta árs á aðalfundi sem haldinn verður síðar á árinu. Aðspurður hvort ekki mætti bíða með að greiða arðinn út vegna ástandsins sem ríkir nú hjá fyrirtækinu sagði Vilhjálmur: „Það er líka spurning. Arður er borgarður af rekstri ársins á undan, það er verið að borga hluthöfum arð af rekstrinum 2016. Þetta nemur 3,8 prósentum af hlutafénu þannig að það má segja að hluthafar séu að hafa þarna 3,8 prósent vexti af sínu hlutafé.“Hlusta má á viðtalið við hann í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Tengdar fréttir Svartur dagur í sögu Akranesbæjar 93 starfsmenn munu að öllum líkindum missa vinnuna hjá HB Granda í lok mánaðar. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir stöðuna í bænum grafalvarlega. 28. mars 2017 06:00 Gefa ekki upp áætlað tap á landvinnslu HB Granda Forstjóri HB Granda, Vilhjálmur Vilhjálmsson, gefur ekki upp hvað fyrirtækið áætlar að tap af landvinnslu á Akranesi geti orðið mikið á næstu árum. 29. mars 2017 06:00 Útspil HB Granda heppnaðist Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur lagt spilin á borðið og boðið HB Granda uppbyggingu sem kostar á annan milljarð króna. Forstjórinn gat ekki svarað hvort tilboðið breytti einhverju sem rætt verður í dag. 29. mars 2017 06:00 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira
Svartur dagur í sögu Akranesbæjar 93 starfsmenn munu að öllum líkindum missa vinnuna hjá HB Granda í lok mánaðar. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir stöðuna í bænum grafalvarlega. 28. mars 2017 06:00
Gefa ekki upp áætlað tap á landvinnslu HB Granda Forstjóri HB Granda, Vilhjálmur Vilhjálmsson, gefur ekki upp hvað fyrirtækið áætlar að tap af landvinnslu á Akranesi geti orðið mikið á næstu árum. 29. mars 2017 06:00
Útspil HB Granda heppnaðist Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur lagt spilin á borðið og boðið HB Granda uppbyggingu sem kostar á annan milljarð króna. Forstjórinn gat ekki svarað hvort tilboðið breytti einhverju sem rætt verður í dag. 29. mars 2017 06:00