Bannar slátrun og flutninga á nautgripum sem komust í kjötmjöl Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. mars 2017 08:28 Myndin er úr safni og tengjast gripirnir fréttinni ekki beint. Vísir/Stefán
Matvælastofnun hefur lagt bann á markaðssetningu afurða, slátrun til manneldis og flutning nautgripa frá bænum Eystri-Grund við Stokkseyri þar sem þeir höfðu aðgang að óvörðum og götuðum sekkjum af kjötmjöli sem ætlað var sem áburður. Kjötmjöl er óheimilt í fóðri fyrir dýr í matvælaframleiðslu. Í tilkynningu frá MAST segir að umfangsmikil löggjöf banni „notkun á á kjötmjöli sem fóður eða til fóðurgerðar fyrir dýr sem alin eru til manneldis til að hindra að heilahrörnunarsjúkdómar berist í menn og dýr. Þrátt fyrir að kjötmjölið hafi verið ætlað til notkunar sem áburður í flög þá var ljóst að nautgripir höfðu óheft aðgengi að sekkjunum um nokkra mánaða skeið. Göt voru á sekkjunum eftir tæki sem notað hefur verið til að koma sekkjunum á planið og höfðu fuglar gatað sekkina enn frekar. Þó svo að ekki hafi verið um ætlaða fóðurgjöf að ræða heldur andvaraleysi þá voru ummerki á staðnum um að nautgripir hafi verið við sekkina, þannig að sýnt þykir að mati Matvælastofnunar að nautgripirnir hafi sleikt og étið kjötmjöl úr þeim.“ MAST hefur lagt tillögur fyrir ráðherra að þeim gripum sem komust í kjötmjölið verði fargað.Nánar má lesa um málið á vef MAST.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira