Tveggja mánaða bið á enda hjá Bale á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. nóvember 2017 19:45 Gareth Bale fagnar marki sínu í síðasta leik hans í búningi Real Madrid sem var í lok september. Vísir/Getty
Gareth Bale er loksins orðinn góður af meiðslunum og mun spila með Real Madrid í spænska bikarnum á morgun. Zinedine Zidane staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag. Gareth Bale hefur verið að glíma við kálfameiðsli síðustu vikurnar en þar á undan var hann tognaður aftan í læri. Bale mun spila með Real Madrid í bikarleik á móti C-deildarliðinu Fuenlebrada. Hinn 28 ára gamli Bale spilaði síðast með Real Madrid í 3-1 sigri á Borussia Dortmund 26. september síðastliðinn. Hann var þá bæði með glæsilegt mark og stoðsendingu. „Hugmyndin er að hann spili á morgun og hann lítur vel út,“ sagði Zinedine Zidane á blaðamannafundi í dag. Gareth Bale missti ekki aðeins af leikjum Real Madrid heldur gat hann ekki spilað í síðustu leikjum Wales í undankeppni HM. Wales missti þarf af lestinni á lokasprettinum og munaði þar mikið um Bale. Gareth Bale hefur ekki spilað eina einustu mínútu með þeim Cristiano Ronaldo og Karim Benzema á þessu tímabili. Annaðhvort meiðsli eða leikbönn hafa séð til þess. „Ég vil sjá þá Gareth, Cristiano og Karim aftur saman. Það er langt síðan að þeir léku saman inn á vellinum,“ sagði Zinedine Zidane. Gareth Bale er mikill styrkur fyrir Real Madrid en hann hefur skorað 70 mörk í 159 leikjum með liðinu en spænska liðið hefur þrisvar sinnum unnið Meistaradeildina á fjórum tímabilum hans á Santiago Bernabeu.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Fleiri fréttir HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 Sjá meira