Rússneski Kommúnistaflokkurinn teflir fram nær óþekktum frambjóðanda gegn Pútín Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 23. desember 2017 21:58 Pavel Grudinin mun etja kappi við sitjandi Rússlandsforseta þegar þjóðin gengur til kosninga í mars á næsta ári. Visir/afp
Flokksmenn rússneska Kommúnistaflokksins hættu við að tefla fram Gennady Zyuganov til höfuðs Vladímír Pútín Rússlandsforseta. Í hans stað útnefndi flokkurinn hinn fimmtíu og sjö ára gamla vélaverkfræðing Pavel Grudinin.Reuters greinir frá því að útspilið komi mjög á óvart því líklegast þótti að forsetaefni flokksins yrði Zyuganov. Kommúnistaflokkurinn hefur áður útnefnt hann fimm sinnum. Zyuganov er fyrrum hermaður og er sjötíu og þriggja ára gamall. Grudinin er ekki þekkt andlit í Rússlandi en auk þess að vera vélaverkfræðingur hefur hann rekið bú í útjaðri Moskvu frá því á miðjum tíunda áratugnum. Með því að horfa fram hjá Zyuganov og tefla fram Grudinin virðist Kommúnistaflokkurinn vera að segja skilið við íhaldsarm stjórnmálahreyfingarinnar. Álitsgjafar telja útspilið til marks um tilraun Kommúnistaflokksins til að ná til breiðari hóps því mælingar sýna að kjósendur flokksins hafa miklum meirihluta verið eldra fólk. Sameinað Rússland, flokkur Pútíns, hefur lýst yfir fullum stuðningi við sitjandi forseta. Rússar ganga til kosninga í mars á næsta ári.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Sjá meira