Veðurstofan varar við miklum vatnavöxtum Birgir Olgeirsson skrifar 11. janúar 2018 12:53 Einkum er varað við vatnavöxtum í kringum fjöll og jökla. Vísir/Vilhelm
Veðurstofan varar við miklum vatnavöxtum og jafnvel flóðum á Suðausturlandi, eða allt frá Eyjafjallajökli í vestri og til Seyðisfjarðar í austri. Reiknað er með að þar hefjist slagveðurs rigning í kvöld og standi með litlum hléum til sunnudagskvölds. Veður fer hlýnandi þannig að saman fara bráðnun og mikil úrkoma og nú þegar er mikið eða jafnvel mjög mikið rennsli í ýmsum ám á svæðinu miðað við árstíma samkvæmt vatnsmælum Veðurstofunnar. Einkum er varað við vatnavöxtum í kringum fjöll og jökla eða í suðursveit á Mýrum og í Lóni og hvetur Veðurstofan fólk til að kynna sér aðstæður áður en það fer um þessar slóðir. Upp úr hádegi verður vaxandi suðaustanátt og verður versta veðrið á Reykjavíkursvæðinu frá klukkan fjögur og til sjö í kvöld. Verður umtalsverð rigning og á meðalvindhraði á bilinu 18 – 25 metrar á sekúndu. Suðaustan stormurinn skellur á norðan- og austanvert landið um kvöldmatarleytið og gengur yfir á þremur til fjórum klukkutímum. Hægari vindur í nótt en verður áfram hvasst á landinu á morgun. Næsta lægð gengur yfir aðfaranótt sunnudags en henni mun væntanlega fylgja snjókoma á höfuðborgarsvæðinu.
Veður Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Sjá meira