Fimm handteknir vegna gruns um alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. febrúar 2018 15:41 Frá Akureyri. Flestir hinna handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu ýmist vegna ofbeldismála eða fíkniefnamála. vísir/auðunn
Fimm manns voru handteknir á Akureyri í dag vegna gruns um alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu í gærdag á rúmlega þrítugum karlmanni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Akureyri en fyrst var greint frá umfangsmiklum lögregluaðgerðum á Akureyri í dag á vef RÚV. Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að í aðgerðinni hafi tekið þátt lögreglumenn á Akureyri, Húsavík, Dalví og frá sérsveit ríkislögreglustjóra. Auk þess voru framkvæmdar húsleitir á nokkrum stöðum og hefur lögreglan á Akureyri notið stuðnings tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við þá vinnu. „Flestir hinna handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu ýmist vegna ofbeldismála eða fíkniefnamála. Hinir sömu hafa verið færðir til vistunar í fangageymslur lögreglu, en yfirheyrslur munu standa yfir fram á nótt og verður síðan framhaldið í fyrramálið. Í fyrramálið verður tekið ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir einhverjum hinna handteknu, slíkt fer eftir framvindu rannsóknarinnar. Rannsókn málsins er á frumstigi og vegna rannsóknarhagsmuna er ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.Fréttin var uppfærð klukkan 15:52.
Lögreglumál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira