Slasaðist alvarlega er hann hugðist draga bíl sem var fastur í snjó Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. febrúar 2018 11:08 Frá aðstæðum á Hellisheiði á fimmtudagskvöld en slysið varð fyrr um daginn. ívar halldórsson
Ökumaður bifreiðar á Suðurlandsvegi við Hellisheiðarvirkjun slasaðist alvarlega síðastliðinn fimmtudag þegar hann hugðist draga bíl sem hann kom að úr festu í snjó. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að skafbylur hafi verið og kóf og vildi ekki betur til en svo að þriðja bílnum var ekið aftan á þann sem sat fastur. Við það kastaðist bíllinn áfram og klemmdi þann sem ætlaði að aðstoða á milli bifreiðanna. Hann lærbrotnaði meðal annars við slysið. Síðar þennan sama dag, fimmtudag, var veginum lokað vegna veðurs og aðstæðna og þurftu björgunarsveitarmenn úr Árnessýslu og Reykjavík að vinna fram á kvöld við að aðstoða fólk vegna ófærðar. Alls voru 25 umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni viku. Í einu þeirra, bílveltu á Mýrdalssandi, austan við Hjörleifshöfða, slösuðust tveir ferðamenn. Voru þeir fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík en skoðun leiddi í ljós að áverkar þeirra voru ekki alvarlegir.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Rektor Cornell-háskóla rífur þögnina Erlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira