Erlent

Rektor Cornell-háskóla rífur þögnina

Freyja Þórisdóttir skrifar
Rektor Cornell-háskóla hefur heitið auknu gagnsæi en áður hafði háskólinn gefið út, eftir að málið komst í heimsfréttirnar, að málið yrði tekið til skoðunar að nýju.
Rektor Cornell-háskóla hefur heitið auknu gagnsæi en áður hafði háskólinn gefið út, eftir að málið komst í heimsfréttirnar, að málið yrði tekið til skoðunar að nýju. AP

Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla, hefur tjáð sig um hópnauðgun á konu í skólanum árið 2024. Hann segir málið vekja verulegan óhug og hefur heitið því að aðstoða við aukið gagnsæi í ljósi vaxandi reiði vegna meðferðar skólans á málinu.

Kemur þetta fram í átta mínútna löngu myndbandi sem birt var á vef skólans en þar segist Kotlikoff fá „verki í hjartað þegar ég hugsa um það sem hún upplifði“.

Vekji upp spurningar

Hann lýsti síðustu viku sem einni þeirri erfiðustu í sögu háskólans og sagði að hún myndi hafa áhrif á háskólann um ókomin ár. „Hún vekur upp átakanlegar og erfiðar spurningar um kynferðisofbeldi, mannfyrirlitningu og þætti í partímenningu, áfengis- og vímuefnaneyslu,“ sagði hann.

Hér fyrir neðan má sjá hluta af myndbandinu sem birt var á síðu háskólans.

Hópnauðgunin á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralagsins Chi Phi við skólann þann 19. október 2024. Sjö menn eru sakaðir um að nauðga konunni klukkustundum saman.

Ekki kært í málinu

Fram hefur komið að konan, sem í dómsskjölum er nefnd Jane Doe, hafi tilkynnt nauðgunina til lögreglu og skólans nokkrum vikum eftir árásina en saksóknari í Tompkins-sýslu ákvað að ákæra ekki í málinu. Mennirnir sættu agaviðurlögum í skólanum eins og að taka aukakúrs eða skrifa ritgerð auk þess sem einn var rekinn úr skólanum og einhverjir þeirra tímabundið.

Þá var greint frá því að mennirnir hefðu auglýst það í hópspjalli að konan væri uppi í húsinu og öðrum mönnum var boðið að vera með. Samkvæmt því sem hefur komið fram voru 57 karlmenn í spjallinu og sjö tóku þátt. Enginn þeirra 57 sem sáu boðið tilkynnti það.

Athygli á meðferð Cornell-háskóla á málinu jókst eftir að Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, sagði að nýbirtar upplýsingar hefðu grafið undan trausti hennar á saksóknara á svæðinu, sem upphaflega neitaði að gefa út ákæru.

Hochul skipaði í kjölfarið Letitiu James ríkissaksóknara sem sérstakan saksóknara til að taka yfir sakamálarannsóknina og sagði að hún myndi „ekki leyfa neinum að sópa þessu máli undir teppið“.

„Unga konan sem er miðpunktur þessa máls á skilið að vita að öllum staðreyndum verður snúið við og réttlætinu fylgt eftir,“ sagði Hochul í yfirlýsingu.


Tengdar fréttir

Sjö sakaðir um að nauðga sam­nemanda klukku­stundum saman

Saksóknarar í New York-ríki hafa ákveðið að taka aftur upp rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2024. Þolandi höfðaði fyrr í þessum mánuði einkamál. Málið hefur vakið mikla athygli og reiði en sjö ungir menn eru sakaðir um að hafa nauðgað konunni í sameiningu klukkustundum saman og að hafa deilt upplýsingum um það á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að hvetja aðra til að taka þátt. 

Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann

Cornell-háskóli hefur samþykkt að gera óháða rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann fyrir um tveimur árum. Háskólinn hefur samþykkt að ráða utanaðkomandi lögfræðinga. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, sagði í gær að hún hefði kallað eftir því og að forseti skólans hefði samþykkt það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×