Um 500 afskráningar á Íslandi vegna réttarins til að gleymast Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 4. júlí 2018 07:00 Google er með starfsemi um allan heim, m.a. á Íslandi. Vísir/epa
Google bárust 1.376 beiðnir frá Íslandi um að tilteknar vefslóðir birtist ekki í leitarvélum fyrirtækisins, frá því það hóf að taka við beiðnum í kjölfar dóms Evrópudómstólsins í apríl 2014 til ársloka 2017. Þetta kemur fram í skýrslu sem internetrisinn birti nýlega um meðferð beiðna á grundvelli réttarins til að gleymast. Skýrslan var unnin í tilefni þess að þrjú ár eru liðin frá því að dómur Evrópudómstólsins féll vorið 2014, þar sem tilvist réttarins til að gleymast var fyrst staðfest. Á upplýsingasvæði Google kemur einnig fram að fjórar beiðnir hafi borist frá íslenskum yfirvöldum um að efni verði fjarlægt af vefsvæðum Google og hefur Google orðið við þeim beiðnum í öllum tilvikum. Ekki kemur fram um hvaða efni er að ræða að öðru leyti en því að efnið er flokkað á grundvelli höfundaréttar í þremur tilvikum og í einu tilviki á grundvelli einkalífs og öryggis. Í fyrrgreindri skýrslu, sem fjallar um beiðnir frá öllum ríkjum ESB og EFTA-ríkjunum, kemur fram að 75 prósent allra sem senda fyrirtækinu beiðnir óska eftir afskráningu fimm eða færri vefslóða og í 35 prósentum tilvika óskar beiðandi einungis eftir afskráningu einnar vefslóðar. Nokkuð stór hluti umbeðinna afskráninga komi hins vegar frá tiltölulega fáum beiðendum. Þótt óskað hafi verið afskráningar á tæplega tveimur og hálfum milljónum vefslóða komi tæp 15 prósent þeirra frá einungis þúsund beiðendum. Sá sem atkvæðamestur hefur verið í beiðnum óskaði eftir afskráningu 5.768 vefslóða. Í skýrslunni eru tekin nokkur dæmi um þau sjónarmið sem Google beitir við meðferð beiðna. Tekið er dæmi af beiðni athafnamanns í viðskiptum sem laut að frétt um sakfellingu sem hann hlaut fyrir tilraun til fjársvika. Google hafnaði beiðninni vegna alvarleika brotsins og tengsla þess við atvinnu mannsins. Í öðru tilviki laut beiðni einstaklings að viðtali sem tekið var við hann í kjölfar hryðjuverkaárásar sem hann lifði af. Þrátt fyrir að hann hafi sjálfviljugur stuðlað að birtingu efnisins féllst Google á beiðnina vegna þess hve viðkvæmt efni var um að ræða og þess að viðkomandi var á unglingsaldri þegar viðtalið var tekið. Um meðferð beiðna sem lúta að samfélagsmiðlum fer eftir því hvort viðkomandi hefur sjálfur einhver ráð með að takmarka aðgang að svæði sínu á viðkomandi miðli. Hafi hann ekki raunhæfan kost á því er líklegra að Google verði við beiðni um afskráningu slóðarinnar í leitarvélinni.Nýr dómur frá MDE um réttinn til að gleymast Í síðustu viku féll dómur hjá Mannréttindadómstól Evrópu í máli bræðra sem óskað höfðu eftir því, að nöfn þeirra yrðu fjarlægð úr fréttum í fréttasöfnum tiltekinna þýskra fjölmiðla, af morði sem þeir voru dæmdir fyrir árið 1993. Í dómnum segir að finna þurfi jafnvægi milli réttar einstaklinga til friðhelgi einkalífs, frelsis fjölmiðla og réttar almennra borgara til aðgangs að upplýsingum. Þannig þurfi að vega rétt einstaklings sem fjallað væri um í netútgáfu fjölmiðils gagnvart rétti almennings til að vera upplýstur, ekki eingöngu um málefni líðandi stundar heldur einnig um atburði fortíðar og sögulegt samhengi. Í því tilviki sem dæmt var um vó tjáningarfrelsið og réttur almennra borgara til upplýsinga þyngra en réttur kærenda til friðhelgi einkalífs.
Birtist í Fréttablaðinu Tækni Tengdar fréttir Íslendingar munu geta farið fram á að upplýsingum um þá sé eytt af netinu Rétturinn til að gleymast á netinu fær aukið vægi í nýrri evrópskri persónuverndarlöggjöf sem tekur gildi hér á landi innan fárra ára. 26. desember 2015 20:08 Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Erlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Spá nú enn verra veðri á fimmtudag Veður Fleiri fréttir Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Fjölgun áminninga, harkalegar uppsagnir og uppnefni eftir að mörkin voru færð Harmi slegin vegna fjölda tilkynninga af leikskólum Ráðherra í áfalli, rógsherferð og æsispennandi kosningar Ester Bíbí leiðir Vinstrið í Hafnarfirði Ræddu „fjóra strámenn“, vonbrigði og hagsmunaárekstra Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Af og frá að viðræður séu hafnar „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Vonskuveðrið gengið yfir og Danir kjósa í dag „Við megum vera vond við börn“ Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Telja litla áhættu af notkun vagnanna en ráðfæra sig við ríkislögreglustjóra Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Ekki skylt að upplýsa um trúarlegar slátrunaraðferðir Reikna með að rýmingu verði aflétt í hádeginu Þeir svartsýnustu trúi varla að Trump muni ráðast á Kúbu Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Úttekt á loftslagsstjórnsýslu frestast fram á haust „Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Óhjákvæmilegt að Ísland fái sjálfkeyrandi ökutæki Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Rýma hús á Seyðisfirði Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Hátt í hundrað skjálftar út af Reykjanesi Sjá meira
Íslendingar munu geta farið fram á að upplýsingum um þá sé eytt af netinu Rétturinn til að gleymast á netinu fær aukið vægi í nýrri evrópskri persónuverndarlöggjöf sem tekur gildi hér á landi innan fárra ára. 26. desember 2015 20:08