Ríkisstjórn Trump vill leyfa notkun á asbesti Kjartan Kjartansson skrifar 8. ágúst 2018 12:13 Verkamenn í hlífðargöllum hreinsa upp eftir eldsvoða í Hollandi árið 2014 vegna ótta við að asbestryk gæti dreifst með vindi. Asbestryk er stórhættulegt mönnum ef þeir anda því að sér. Vísir/EPA
Umhverfisstofnun Bandaríkjanna hefur lagt fram tillögu um að leyfa notkun á eiturefninu asbesti í ákveðnum tilfellum. Notkun á efninu hefur verið bönnuð eða takmörkuð frá því á 9. áratug síðustu aldar. Samkvæmt tillögunni þurfa innflutningsfyrirtæki og framleiðendur leyfi frá Umhverfisstofnuninni til þess að halda áfram eða byrja aftur framleiðslu, innflutning eða vinnslu á asbesti. Tillagan er nú í umsagnarferli áður en hún verður að reglu. Asbest var lengi vel notað til einangrunar í húsum. Notkun þess hefur hins vegar verið bönnuð víðast hvar í heiminum vegna sterkra eituráhrifa þess, þar á meðal á Íslandi. Efnið getur meðal annars valdið sjúkdómum eins og steinlunga og lungna- eða fleiðrukrabbameini, að því er segir á Vísindavefnum. Í frétt fréttastofu bandarísku CBS-sjónvarpsstöðvarinnar kemur fram að Umhverfisstofnunin fullyrði að án tillögunnar gæti hún ekki stöðvað fyrirtæki í að framleiða, flytja inn eða vinna asbest án leyfis.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Sjá meira