Sonja Ýr stefnir á formanninn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. september 2018 15:23 Sonja Ýr Þorbergsdóttir gefur kost á sér til formanns.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB, gefur kost á sér til formennsku á þingi bandalagsins sem fram fer í október. Elín Björg Jónsdóttir, sem verið hefur formaður BSRB undanfarin níu ár, tilkynnti stjórn í júní að hún hygðist stíga til hliðar á fyrrnefndu þingi. Sonja staðfestir framboð sitt á Vísi en kosið verður á þinginu sem fram fer 17. til 19. október. Sonja hefur starfað sem lögfræðingur bandalagsins síðastliðinn áratug og segist í starfi sínu hafa unnið ötullega að fjölmörgum af stærstu stefnumálum BSRB. Hún segir mikilvægasta verkefni BSRB að auka velferð allra, stuðla að auknu jafnrétti og tryggja að allir geti lifað á launum sínum. Sonja sendi Vísi tilkynningu vegna framboðs síns og má sjá hana í heild hér að neðan. „BSRB hefur í áratugi barist fyrir lífsgæðum og hagsmunum launafólks og náð miklum árangri í þeirri baráttu. Þrátt fyrir að undanfarin ár hafi ríkt góðæri á landinu hefur það ekki skilað sér með sama hætti til allra og síst til þeirra tekjulægstu. Mikilvægasta verkefni bandalagsins er að auka velferð okkar allra, stuðla að auknu jafnrétti og tryggja það að allir geti lifað á launum sínum. Eitt af stærstu baráttumálum okkar í BSRB er stytting vinnuvikunnar. Allt of víða einkennist starfsumhverfi í almannaþjónustu af lágmarksmönnun og miklu álagi með tilheyrandi afleiðingum fyrir heilsu fólks. Stytting vinnuvikunnar stuðlar meðal annars að betri líðan, minni streitu, aukinni starfsánægju og fækkun veikindadaga. Við í BSRB þurfum að halda áfram að berjast kröftuglega fyrir styttingu vinnuvikunnar og betra starfsumhverfi. BSRB hefur ávallt unnið að því að tryggja aðgengi félagsmanna að menntun og með nýjum áskorunum verður þetta hlutverk bandalagsins enn mikilvægara. Hraðar tæknibreytingar munu hafa mikil áhrif á vinnumarkað framtíðarinnar. Störf munu breytast og kalla á nýja færni. Við í BSRB þurfum að bregðast við þessum áskorunum og tryggja að félagsmenn hafi ávallt tækifæri til að bæta við sig þekkingu og færni.* Við sem erum félagar í aðildarfélögum BSRB erum fjölbreyttur hópur og það er forgangsverkefni bandalagsins að stuðla að því að raddir okkar allra fái að heyrast. Samfélag okkar verður fjölbreyttara með hverju árinu sem líður og fjölmörg tækifæri felast í þessari þróun. Samstaðan hefur skilað okkur mörgum sigrunum og nýjar raddir gera okkur sterkari í baráttunni. Síðastliðin tíu ár hef ég starfað sem lögfræðingur BSRB og unnið ötullega að því að framfylgja stefnumálum bandalagsins. Ég lýsi því nú yfir að ég gef kost á mér í embætti formanns BSRB á þingi bandalagsins sem haldið verður í Reykjavík 17.–19. október næstkomandi. Ef ég hlýt kosningu sem formaður BSRB mun ég starfa af krafti að hagsmunum félagsmanna. Við í bandalaginu þurfum að vinna að aðgerðum í húsnæðismálum, efla stuðning við barnafjölskyldur, minnka skattbyrði og tryggja jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Sköpum saman velsæld og jafnrétti fyrir okkur öll.“
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira