Flórida-búar sjá fram á óhugsanlega eyðileggingu Atli Ísleifsson skrifar 10. október 2018 13:18 Fáir eru á ferli í bænum Panama City í Flórida. EPA/Dan Anderson
Fellibylurinn Michael mun ná landi í Bandaríkjunum á næstu klukkustundum og hefur ríkisstjóri Flórida sagt að íbúar á sumum svæðum muni sjá fram á „óhugsanlega eyðileggingu“. Búist er við að vindhviður muni ná 65 metrum á sekúndu. Ríkisstjórinn Rick Scott segir að sá tími sem fólk hafi haft til að flýja sé liðinn og hefur hann beint þeim orðum til íbúa að leita skjóls. Hann segir að Michael sé líklegur til að verða sá fellibylur sem muni valda mestri eyðileggingu á norðvesturströnd Flórída í sögunni. Scott segist hafa rætt við Donald Trump Bandaríkjaforseta sem segir alríkisstjórnina reiðubúna með aðstoð. Búið sé að fylla vörubíla af mat og öðrum nauðsynjum og verður þeim ekið inn á hamfarasvæðin þegar Michael hefur gengið yfir. Þúsund björgunarmenn eru í viðbragðsstöðu. Scott segir það vera lykilatriði að koma rafmagni aftur á á hamfarasvæðunum. Búið var að beina þeim orðum til 375 þúsund íbúa að flýja heimili sín en búist er við að Michael gangi að land í Flórída um klukkan 16 að íslenskum tíma, eða um hádegisbil að staðartíma.
Bandaríkin Veður Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira