Leikkonan Sondra Locke er látin Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. desember 2018 08:37 Sondra Locke í kvikmyndinni The Gauntlet. Vísir/getty
Bandaríska leikkonan Sondra Locke er látin 74 ára að aldri. Locke var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Heart Is a Lonely Hunter. Þá lék hún í sex kvikmyndum með fyrrverandi kærasta sínum, bandaríska leikaranum og leikstjóranum Clint Eastwood. Locke lést á heimili sínu þann 3. nóvember síðastliðinn en ekki var greint frá andláti hennar fyrr en nú. Dánarorsök hennar er sögð hjartaáfall sem rakið er til krabbameins sem hún glímdi við fram til dauðadags. Locke spratt fyrst fram á sjónarsviðið í kvikmyndinni The Heart Is a Lonely Hunter, sem jafnframt var hennar fyrsta kvikmyndahlutverk. Hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir leik sinn í myndinni, aðeins 24 ára gömul.Locke og Eastwood árið 1982.Vísir/gettyHún og Eastwood tóku saman árið 1975 og stóð samband þeirra yfir í þrettán ár. Þau léku saman í sex kvikmyndum, þar á meðal Josey Wales og Every Which Way But Loose. Locke lætur eftir sig eiginmann, myndhöggvarann Gordon Anderson. Hann tilkynnti yfirvöldum um andlát hennar.Hér að neðan má sjá atriði úr kvikmyndinni The Heart Is a Lonely Hunter sem frumsýnd var árið 1968.
Andlát Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Áttunda barn Clint Eastwood mætti á frumsýningu sem staðfesti þrálátan orðróm Systkini Laurie Eastwood tóku henni fagnandi. 13. desember 2018 00:04 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira
Áttunda barn Clint Eastwood mætti á frumsýningu sem staðfesti þrálátan orðróm Systkini Laurie Eastwood tóku henni fagnandi. 13. desember 2018 00:04