Sat föst í lyftu milljarðamærings alla helgina Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. janúar 2019 06:31 Heimili mannsins á Manhattan, þar sem konan festist. Google Maps
Aðstoðarkonu bandarísks bankastjóra var í gær bjargað úr lyftu á heimili mannsins á Manhattan í New York. Konan, sem sögð er vera hin 53 ára gamla Marites Fortaliza, steig inn í lyftuna á föstudagskvöld og hafði hún því setið þar föst í rúmlega tvo sólarhringa áður en slökkviliðsmenn komu henni til bjargar í gærmorgun. Í yfirlýsingu sem fjölskylda konunnar sendi frá sér og vísað er til á vef Associated Press var konunni komið undir læknishendur. Þrátt fyrir að hafa hvorki fengið vott né þurrt alla helgina er Fortaliza sögð ágætlega haldin. Sem fyrr segir varð óhappið á heimili bankastjóra, Warren Stephens, en konan hefur verið honum og fjölskyldu hans innan handar síðastliðin 18 ár. Fjölskyldan hafði farið saman í helgarfrí og var því enginn annar á heimilinu þegar Fortaliza festist í lyftunni, á milli annarrar og þriðju hæðar hússins. Þrátt fyrir að tildrög lyftubilunarinnar séu enn til rannsóknar er talið að bankastjórinn hafi trassað að láta umrædda lyftu gangast undir reglubundna skoðun.
Bandaríkin Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Sjá meira