Gagnrýnandi Alþjóðabankans tilnefndur forseti hans Kjartan Kjartansson skrifar 5. febrúar 2019 11:49 Malpass vann meðal annars fyrir undirbúningsnefnd fyrir valdatöku Trump og er sagður dyggur stuðningsmaður forsetans. Vísir/EPA
Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður ætla að tilnefna David Malpass, aðstoðarfjármálaráðherra sinn, sem næsta forseta Alþjóðabankans. Malpass hefur verið harður gagnrýnandi bankans. Búist er við því að Trump tilkynni um valið á morgun. Löng hefð er fyrir því að Bandaríkin tilnefni forseta Alþjóðabankans sem stærsti hluthafi hans. Stjórn bankans þarf að staðfesta tilnefninguna, að sögn New York Times. Bankinn er vettvangur fyrir þróuðustu ríki heims til að lána þróunarríkjum til að fjármagna uppbyggingu innviða og þróunarverkefni. Mögulegt er talið að Malpass verði ekki óumdeildur í stjórninni. Hann hefur eins og Trump sjálfur ítrekað véfengt störf Alþjóðbankans og annarra alþjóðastofnana. Malpass, sem stýrt hefur viðræðum Bandaríkjastjórnar við Kínverja um viðskiptasamband ríkjanna, hefur meðal annars gagnrýnt að Alþjóðabankinn láni Kína. Yrði Malpass staðfestur í embættið tæki hann við af Jim Yong Kim sem tilkynnti skyndilega um afsögn sína í síðasta mánuði. Hann átti nærri því þrjú ár eftir af kjörtímabili sínu hjá bankanum. Malpass var meðal annars yfirhagfræðingur fjárfestingabankans Bear Stearns frá 1993 fram að falli hans árið 2008. Hann bauð sig fram til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir repúblikana í New York árið 2010 en tapaði.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Dagný Ósk látin Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Fleiri fréttir Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Sjá meira