Byggja á stærsta kjarnorkuslysi sögunnar Stöð 2 kynnir 6. maí 2019 17:15 Stellan Skarsgård og Jared Harris fara með þungaviktarhlutverk í þáttunum, ásamt Emmu Watson. HBO
Sænski stórleikarinn Stellan Skarsgård fer með eitt burðarhlutverka í þáttunum Tsjernóbíl, sem hefja göngu sína á Stöð 2 annað kvöld klukkan 21.45. Þættirnir byggja á einu stærsta kjarnorkuslysi sögunnar þegar sprenging varð í kjarnorkuveri í Úkraínu árið 1986 og geislavirk efni sluppu út í andrúmsloftið í gífurlegu magni. Þrjátíu og þremur árum síðar sér ekki fyrir endann á áhrifum slyssins. Magnað handrit Skarsgård man sjálfur vel eftir slysinu og áhrifa þess á líf fólks í Svíþjóð. Hann segir handritið að þáttunum magnað og hann hafi ekki þurft að hugsa sig tvisvar um þegar honum bauðst hlutverk úkraínska ráðherrans Boris Shcerbina sem bregðast þarf við slysinu og hreinsa til. Í fyrstu var talið að um minniháttar sprengingu í tanki væri að ræða en þegar Shcerbina flýgur yfir kjarnorkuverið í þyrlu rennur upp fyrir honum hvílíkt stórslys hefur orðið. „Scherbina er gamall pólitíkus sem hefur marga fjöruna sopið. Hann er samofinn kerfinu en fær sjokk þegar hann sér eyðilegginguna og hverskonar afleiðingar sprengingin getur haft í för með sér. Þættirnir eru afar vel skrifaðir og eins sá ég tækifæri til að leika með Jared Harris og Emily Watson,“ segir Skarsgård en Harris og Watson fara með hlutverk vísindamannanna sem reyna að komast til botns í því hvað fór úrskeiðis og hvernig megi takmarka skaðann. „Persónur okkar Jared vinna náið saman og tengjast sterkum böndum.“ Saga Tsjernóbíl á erindi í dag „Ég man vel eftir því þegar slysið varð því geislavirk mengun barst yfir til Svíþjóðar. Ekki mátti borða hreindýrakjöt eða villta sveppi nyrst í Svíþjóð í mörg ár eftir slysið,“ segir Skarsgård. „Þættirnir snúast að miklu leiti um hvernig sovéska kerfið laug um ástandið en þeir fjalla líka um tæknina á bak við kjarnorku. Fyrir mörgum árum var kosið gegn kjarnorku í Svíþjóð en ég er ekki viss um að það yrði gert í dag. Við verðum að hætta að brenna jarðefnaeldsneyti og mögulega liggur lausnin í kjarnorku. Það er ekki gott að segja hvað á að gera en, við verðum alla vega að tala um þessa hluti,“ segir Skarsgård. Menguð mjólk og útivistarbann Jared Harris segist einnig muna vel eftir Tsjernóbílslysinu. „Ég man eftir tilkynningum um að fara ekki út úr húsi í London, sérstaklega ef það átti að rigna. Ekki mátti drekka mjólk og lambakjöt frá Wales var tekið úr sölu,“ segir hann. Harris fer með hlutverk Valery Legasov, vísindamanns sem fékk það óvinnandi verk að hespa lokið aftur á það Pandórubox sem opnaðist við slysið. „Það er mikilvægt að segja þessa sögu í dag því hún minnir okkur á að taka ekki við öllum upplýsingum gagnrýnilaust. Þessi saga minnir okkur einnig á að þeir sem þola verstu afleiðingarnar eru yfirleitt þeir sem enga sök eiga á því hvernig fór. Þættirnir eru byggðir á bókinni „Voices from Chernobyl“ sem er áhrifamikil lýsing á því hvað fólkið gekk í gegnum og hvað það missti.“ Segir sannleikann Persóna Emily Watson, Ulana Khomyuk, er byggð á mörgum raunverulegum vísindamönnum sem komu að Tsjernóbíl. Ulana Khomyuk áttar sig á því að aðferðirnar sem beitt er við að slökkva eldana í verinu, geta valdið annarri sprengingu. Hún ekur í hvelli til Tsjernóbíl og útskýrir málið og verður hluti af aðgerðarteyminu. Khomyuk er fengin til að komast að því hvað gerðist og leiða rannsóknir hennar skuggalega hlut í ljós. „Ég las mér vel til fyrir hlutverkið og komst að því að Hvíta Rússland var líklega einn hættulegasti staður sem hægt var að búa á á tuttugustu öldinni. Persónan sem ég leik hefði upplifað innrás nasista og alist upp við hörmungar. Hún hlyti því að vera hörð af sér. Hún er manneskja sem segir sannleikann upphátt í samfélagi þar sem það er hættulegt,“ segir Watson. Leikstjórn Tsjernóbíl er í höndum Johan Renck (Breaking Bad) og Hildur Guðnadóttir sér um tónlistina. Þættirnir eru frumsýndir á HBO í kvöld og hefjast á Stöð 2 annað kvöld kl 21.45.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Stöð 2. HBO
Bíó og sjónvarp Hildur Guðnadóttir Menning Tsjernobyl Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grillað nachos fyrir partíið og pallinn í góða veðrinu Upplifa oft von í fyrsta sinn á Vík Icewear styrkir Þjóðhátíð Hágæða merkjavara á geggjuðum afslætti út föstudaginn Öldrun í hársverði - Fríða Rut gefur ráð Flottasti garður landsins er á Selfossi Myndaveisla: Bylgjulestin lokaði sumrinu í Vaglaskógi Íslendingar geta verið sóðar Vertu hress um verslunarmannahelgina með After Party! Bylgjulestin heimsækir Vaglaskóg Ísland fyrst Norðurlanda með EMotorad rafmagnshjól Er þetta hinn fullkomni pulled pork borgari? Bylgjulestin mætti á Götubitahátíðina - Ilmandi myndaveisla Strumpaður dagur á forsýningu á Strumpum Bylgjulestin og dásamlegur götubiti í Hljómskálagarðinum Kjóstu flottasta garð ársins 2025! „Búið ykkur undir bragðsprengju í munni“ Myndaveisla frá Kótelettunni - Bylgjulestin 2025 Góð ráð fyrir garðinn í sumar „Töluvert álag á líkama sem nálgast sextugt“ Bylgjulestin mætir á Kótelettuna Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Myndaveisla frá Írskum dögum - Bylgjulestin 2025 Flottasti garður landsins - taktu þátt! Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Vann glæsilegan vinning í sumarbókaleik Bylgjunnar og Vísis Girnileg pizza úr smiðju BBQ kóngsins Icewear verður einn af aðalstyrktaraðilum Íslandsmótsins í golfi 2025 Sjá meira