Formaður Selfoss: Stundum virkar Hellisheiðin löng í aðra áttina Anton Ingi Leifsson skrifar 12. júní 2019 14:30 Þjálfararnir á síðustu leiktíð, Patrekur Jóhannesson og aðstoðarmaður hans, Grímur Hergeirsson, með Íslandsbikarinn. vísir/vilhelm
Selfoss hefur enn ekki fundið þjálfara sem stýrir Íslandsmeisturunum í Olís-deild karla á næstu leiktíð en leitin hefur enn ekki borið árangur.Guðmundur Hilmarsson á Morgunblaðinu ræðir við Þóri Haraldsson, formann Selfoss, í morgun, en Selfoss fann þjálfara í janúar er Hannes Jón Jónsson samdi við liðið. Hann átti að taka við skútunni af Patreki Jóhannessyni sem tekur við Skjern í sumar en Hannes Jón fékk svo síðar meir tilboð frá þýska úrvalsdeildarfélaginu, Bietigheim, sem hann sagði já við, með leyfi Selfyssinga. „Það er lítið að frétta af okkar þjálfaramálum. Það er ekkert komið í hendi enn sem komið. Við höfum lagt áherslu á að finna góðan íslenskan þjálfara enda teljum við að við eigum talsvert mikið af frambærilegum þjálfurum hér á landi,“ sagði Þórir í Morgunblaðinu. „Við erum ekki búnir að hitta í mark ennþá. Við erum búnir að ræða við ýmsa þjálfara eftir Hannes Jón sveik okkur en það hefur ekki skilað neinu ennþá,“ bætti Þórir við. „Við höfum haldið það í nokkrar vikur að við værum að klára þessi mál og að landa góðum manni en svo hefur það ekki gengið upp á síðustu metrunum. Stundum virkar Hellisheiðin löng í aðra áttina,“ sagði Þórir. Íslandsmeistararnir munu taka þátt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð.
Árborg Olís-deild karla Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Íslendingarnir atkvæðamiklir í kvöld Sandra með tíu í þrettán marka sigri ÍBV Engin skoraði meira en Elín Klara Með 32 mörk í síðustu þremur leikjum Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Valur steinlá gegn Blomberg-Lippe „Tækifæri fyrir aðra að stíga upp og sýna sig“ Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Haukar við toppinn og HM-farar fögnuðu á Selfossi Ákvörðun þjálfarans að taka ekki átján leikmenn: „Hefur ekkert með fjárhagsstöðuna að gera“ „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ HM hópurinn tilkynntur: Margir reynsluboltar horfnir á braut „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Sjá meira