Vísbendingar um að eldstöðin Katla sé nálægt brotmörkum Kristján Már Unnarsson skrifar 22. ágúst 2019 21:42 Horft til Kötlu úr austri. Lengi vel var talið að hún gysi reglulega á hálfrar aldar fresti. Stöð 2/Þorsteinn Magnússon.
Merki eru um að Katla sé að undirbúa gos og vísbendingar um að eldfjallið sé komið nálægt brotmörkum. Jarðeðlisfræðingur treysir sér þó ekki til að segja um hvort eitt ár eða tugir ára séu í næsta Kötlugos. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Kannski er þetta sú spurning sem áhugamenn um íslensk eldfjöll hafa oftast spurt sig: Hvenær kemur Katla eiginlega? Enda er hún sú eldstöð sem menn héldu lengi vel að væri reglusömust þeirra allra. Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðingur og dósent við jarðvísindadeild Háskóla Íslands, er í hópi þeirra jarðvísindamanna sem taka reglulega púlsinn á Kötlu. Til þess nota þeir fjölda jarðskjálftamæla og gps-tækja í kringum eldstöðina, meðal annars undan Hrífunesi í Skaftártungu, þar sem við hittum hann að störfum. Litlar jarðskorpuhreyfingar sjást þó í nágrenni Mýrdalsjökuls utan sjálfrar Kötlu.Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands.Stöð 2/Þorsteinn Magnússon.„Aftur á móti eru mælar sem eru uppi á öskjubarminum, þeir sýna svona vísbendingar um að það sé þensla, hæg þensla í eldstöðinni, en hún sé væntanlega á grunnu dýpi," segir Halldór. „Það er mjög áhugavert hvað það er mikil jarðskjálftavirkni í Kötlu, miðað við hvað það eru litlar jarðskorpuhreyfingar. Ein leið til þess að túlka það er að eldfjallið sé í raun bara komið nálægt brotmörkum. Þannig að þegar kemur bara lítið magn af kviku inn þá kemur mikið af jarðskjálftum. Það er ein af ástæðunum fyrir því að við erum með alla þessa mæla ennþá í gangi hérna í kringum Kötlu og erum virkilega að fylgjast með henni,“ segir hann. En þýðir þetta að aðdragandi eldgoss gæti orðið stuttur? „Ja, það gæti einmitt verið ef kvikuhólfið liggur grunnt. Það þarf ekki endilega að vera mikill aðdragandi. En það geta líka verið allskonar önnur gos sem geta komið úr Kötlu. Það er svo fjölbreytt gossaga, eins og Eldgjá. Eldgjárgosið er náttúrlega risavaxið. Það kemur úr Kötlu.“Halldór hugar að gps-mælistöð sem staðsett er sunnan Hrífuness í Skaftártungu.Stöð 2/Þorsteinn Magnússon.Þá hafa menn spurt sig hvort jökulhlaup, meðal annars í Múlakvísl, megi rekja til eldgosa undir jöklinum. „Hugsanlega voru smágos, til dæmis 1955, þegar komu stór hlaup undan Kötlu. Og það hafa verið ýmsar hugmyndir um að stundum séu svona örgos.“ Sjá nánar hér: Segir rannsóknir styðja að Katla gaus árið 2011. En svo mikið er víst, jarðvísindamaðurinn sér merki þess að Katla sé að undirbúa gos. „Já, ég mundi halda að Katla væri að undirbúa sig undir gos. Við sjáum að það er smávegis þensla í eldstöðinni og mjög mikil jarðskjálftavirkni ef við lítum til langs tíma. Þótt hún sé mismunandi frá ári til árs þá er viðvarandi frekar mikil jarðskjálftavirkni og það bendir til þess eldstöðin sé svona hægt og rólega að undirbúa sig. En hvort það sé eitt ár eða tíu eða fimmtíu ár í næsta gos, það er bara voðalega erfitt að segja til um,“ segir Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Eldgos og jarðhræringar Katla Mýrdalshreppur Skaftárhreppur Tengdar fréttir Íbúar í Vík í Mýrdal óttast ekki eldgos í Kötlu Um 350 manns komu saman í Vík í dag til að minnast þess að ein öld er frá Kötlugosinu 1918. 12. október 2018 21:00 Katla til í hvað sem er eftir lengsta hlé milli stórra gosa frá landnámi Páll Einarsson jarðfræðingur rakti hvernig Katla hefur reynst vísindamönnum hið mesta vandræðabarn í gegnum árin. 30. mars 2018 09:00 Stórbýli sem Katla eyddi grafið upp úr sandinum Fornleifafræðingar grafa nú upp fornt stórbýli á Mýrdalssandi sem talið er að hafi eyðst fyrir sexhundruð árum af völdum Kötluhlaupa. 19. júlí 2018 22:00 Segir rannsóknir styðja að Katla gaus árið 2011 Síðasta Kötlugos var ekki árið 1918 heldur að öllum líkindum árið 2011, þegar brúin yfir Múlakvísl sópaðist burt. Jarðeðlisfræðingur segir frekari rannsóknir á atburðinum fyrir sex árum styðja að þá hafi orðið lítið eldgos í Kötlu. 2. desember 2017 23:40 Hungursneyð í Evrópu á 9. öld rakin til Kötlugoss Eldgos í Kötlu fyrir tólfhundruð árum er nú talið geta skýrt hungursneyð sem varð í Evrópu hálfri öld áður en Ísland byggðist. 9. ágúst 2017 21:00 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
Íbúar í Vík í Mýrdal óttast ekki eldgos í Kötlu Um 350 manns komu saman í Vík í dag til að minnast þess að ein öld er frá Kötlugosinu 1918. 12. október 2018 21:00
Katla til í hvað sem er eftir lengsta hlé milli stórra gosa frá landnámi Páll Einarsson jarðfræðingur rakti hvernig Katla hefur reynst vísindamönnum hið mesta vandræðabarn í gegnum árin. 30. mars 2018 09:00
Stórbýli sem Katla eyddi grafið upp úr sandinum Fornleifafræðingar grafa nú upp fornt stórbýli á Mýrdalssandi sem talið er að hafi eyðst fyrir sexhundruð árum af völdum Kötluhlaupa. 19. júlí 2018 22:00
Segir rannsóknir styðja að Katla gaus árið 2011 Síðasta Kötlugos var ekki árið 1918 heldur að öllum líkindum árið 2011, þegar brúin yfir Múlakvísl sópaðist burt. Jarðeðlisfræðingur segir frekari rannsóknir á atburðinum fyrir sex árum styðja að þá hafi orðið lítið eldgos í Kötlu. 2. desember 2017 23:40
Hungursneyð í Evrópu á 9. öld rakin til Kötlugoss Eldgos í Kötlu fyrir tólfhundruð árum er nú talið geta skýrt hungursneyð sem varð í Evrópu hálfri öld áður en Ísland byggðist. 9. ágúst 2017 21:00