Leki frá flutningskerfinu á við útblástur 1.300 bíla Kjartan Kjartansson skrifar 17. september 2019 09:00 Tengivirki Landsnets á Geithálsi fyrir utan Reykjavík. Það er eitt þeirra sautján tengivirkja sem nota aðeins SF6 sem einangrun. Fimmtíu til viðbótar nota blöndu af gasinu og olíu. Vísir/Vilhelm
Öflug gróðurhúsalofttegund sem lekur frá tengivirkjum er stærsti losunarþáttur raforkuflutningskerfis Landsnets og jafnast á við útblástur tæplega 1.300 hefðbundinna fólksbifreiða á ári. Losun lofttegundarinnar er engu að síður aðeins brotabrot af árlegri heildarlosun Íslands á gróðurhúsalofttegundum. Brennisteinshexaflúoríð (SF6) er ein öflugasta gróðurhúsalofttegund sem til er og getur hún valdið tæplega 23.000 sinnum meiri hlýnun á andrúmslofti jarðar en koltvísýringur. Styrkur lofttegundarinnar er lítill í lofthjúpnum en hún getur lifað þar í fleiri aldir. Lofttegundin er meðal annars notuð til að einangra tengivirki í raforkuflutningskerfum til að koma í veg fyrir skammhlaup og rafmagnseldsvoða. Eitthvað magn gassins sleppur út í andrúmsloftið vegna leka í tengivirkjum. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC fyrir helgi kom fram að vegna aukinnar rafvæðingar til að berjast gegn loftslagsbreytingum af völdum manna sé búist við því að notkun SF6 eigi eftir að aukast um 75% fram til ársins 2030.Sjá einnig:Sterk gróðurhúsalofttegund fylgifiskur aukinnar rafvæðingar Í Evrópu hafi árleg losun SF6 numið um 6,73 milljónum koltvísýringsígilda. Það jafnist á við útblástur um 1,3 milljóna bifreiða.Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets.Erfitt að koma algerlega í veg fyrir leka Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir að af 79 tengivirkjum fyrirtækisins notist sautján eingöngu við brennisteinshexaflúoríð sem einangrun, fimmtíu blandi saman SF6 og olíu og tólf noti aðeins olíu. Leki á brennisteinshexaflúoríð frá rafbúnaði í tengivirkjum sé stærsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda vegna reksturs flutningskerfisins. Erfitt sé að koma algerlega fyrir leka en unnið sé hörðum höndum að því að lágmarka hann. Í fyrra láku 142,9 kíló af brennisteinshexaflúoríði frá tengivirkjum Landsnets. Steinunn segir að hvert kíló af gasinu jafnist á við losun sem verður af akstri níu hefðbundinna fólksbifreiða á ári. Þannig var losunin frá tengivirkjunum í fyrra sambærileg við 1.287 bíla.Aðeins 0,05% af heildarlosun Íslands Samkvæmt tölum Umhverfisstofnunar fyrir árið 2017 nam heildarlosun Íslands á brennisteinshexaflúoríði um hundrað kílóum. Það jafngildi rúmlega 2.300 koltvísýringsígildum og hafi þannig verið um 0,05% af heildarlosun Íslands á gróðurhúsalofttegundum þegar losun vegna landnotkunar er ekki talin með. Í skriflegu svari frá stofnuninni kemur fram að gasið sé nánast eingöngu notað í rafbúnaði til að einangra tengivirki. Landsnet sé stærsti notandi þess en gasið sé notað í minna magni í álbræðslu, orkuverum og öðrum raforkuflutningsfyrirtækjum. Útblástur á SF6 á Íslandi hefur aukist um 110% frá árinu 1990 en þó ekki í sama hlutfalli og notkun gassins hefur færst í aukana á sama tíma. Tveir toppar hafi orðið í SF6-lekum undanfarin níu ár. Árið 2010 náði losunin tæpum tvö hundruð kílóum vegna tveggja ótengdra slysa þar sem tengivirki eyðilögðust. Tveimur árum síðar láku um 230 kíló og var það rekið til Landsnets.UmhverfisstofnunHuga að vöktun og öðrum kostum Steinunn frá Landsneti segir að í aðgerðaáætlun fyrirtækisins vegna SF6 sé sérstaklega hugað að því að auka vöktun á SF6-gashólfum, sérstaklega í eldri virkjunum. Í samræmi við lög taki Landsnet reglulega saman niðurstöður um notkun og leka á SF6 og tilkynni þær til umhverfisyfirvalda og framkvæmdastjórnar fyrirtækisins. Í umfjöllun BBC kom fram að fáir valkostir séu til við SF6 sem reynsla sé komin á fyrir háspennuvirki. Orkufyrirtæki vilji því ekki taka áhættuna á að skipta um. Ýmsir aðrir kostir séu þó í boði fyrir miðlungsspennubúnað. „Út um allan heim er verið að skoða hvaða möguleikar eru í boði varðandi háspennubúnað án SF6-einangrunarmiðils og á sama tíma að gera auknar kröfur til framleiðenda um lágmarksleka af búnaði og við fylgjumst vel með þeirri umræðu,“ segir Steinunn um hvort Landsnet hafi skoðað að nota önnur efni til að einangra tengivirki sín.
Loftslagsmál Orkumál Umhverfismál Tengdar fréttir Sterk gróðurhúsalofttegund fylgifiskur aukinnar rafvæðingar Brennisteinshexaflúoríð er notað til að koma í veg fyrir rafmagnsslys. Það er tæplega 24.000 sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur. 13. september 2019 16:33 Mest lesið Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Erlent Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Erlent Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Innlent Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Innlent Efast um að olíuleit beri árangur Innlent Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Innlent Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Erlent Fleiri fréttir Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Sjá meira
Sterk gróðurhúsalofttegund fylgifiskur aukinnar rafvæðingar Brennisteinshexaflúoríð er notað til að koma í veg fyrir rafmagnsslys. Það er tæplega 24.000 sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur. 13. september 2019 16:33