Konan sem á að hafa horft á Friends í fjóra daga vill 1,4 milljarða frá De Niro Birgir Olgeirsson skrifar 3. október 2019 17:08 Robert De Niro. Vísir/AP
Fyrrverandi starfsmaður Óskarsverðlaunahafans Robert De Niro hefur krafið leikarann um tólf milljónir dala í skaðabætur, sem samsvarar um 1,4 milljörðum íslenskrar króna. Sakar þessi fyrrverandi starfsmaður De Niro um kynjafordóma á vinnustað. Starfsmaðurinn fyrrverandi er Graham Chase Robinson en De Niro hafði sjálfur höfðað sex milljóna dollara skaðabótamál gegn henni. De Niro sakaði Robinson um að hafa svikið fé úr fyrirtækinu Canal Production ásamt því að hafa horft látlaust á efni á streymisveitunni Netflix á vinnutíma. Í stefnu De Niro kom fram að Robinson hefði varið fjórum dögum í að horfa á þáttaröðina Friends í stað þess að sinna vinnunni. Robinson vill meina í stefnu sinni að De Niro haldi í gömul gildi þar sem konur eru ekki jafn réttháar og karlar. Robinson vill meina að De Niro gangist ekki við því að karlmenn eigi að koma fram við konur sem jafningja. Er því haldið fram að De Niro sé sama um kynjamisrétti á vinnustað og að Robinson sé fórnarlamb þess viðhorfs. Robinson segir De Niro hafa notað niðrandi orð þegar hann ávarpaði hana og að hann hafi litið undan þegar hún var slegin á afturendann af samstarfsmanni. Þá heldur Robinson því fram að De Niro hafi beðið hana um að klóra sér á bakinu, hneppa tölum hans, laga kraga og bindi og vekja hann.
Bandaríkin Hollywood Netflix Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira