Ökuníðingi á vespu veitt eftirför sem lauk á slysadeild Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. nóvember 2019 07:30 Maðurinn var loks stöðvaður við Kringluna. Vísir/vilhelm
Lögreglumenn veittu fullorðnum ökumanni vespu eftirför frá Skeifunni að Kringlunni í nótt. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild að lokinni eftirförinni og er grunaður um fjölda umferðarlagabrota.Í dagbók lögreglu segir að lögreglumenn hafi ætlað að hafa afskipti af ökumanni vespunnar við Skeifuna rétt fyrir klukkan þrjú í nótt en hann stoppaði ekki. Hófst þá eftirför frá Skeifunni að Kringlunni, þar sem ökumaðurinn missti stjórn á hjólinu, rann í hálku og datt. Ökumaðurinn var hjálmlaus og fékk sár á höfuðið. Honum var ekið á slysadeild til aðhlynningar. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og fjölda umferðarlagabrota. Þannig hafi hann í tvígang ekið gegn rauðu ljósi, einu sinni ekið gegn einstefnu, auk þess sem hann ók eftir gangstéttum og göngustígum. Þá er bifhjól hans, vespan umrædda, bæði óskráð og ótryggt. Maðurinn var látinn laus að lokinni sýnatöku og skráningu upplýsinga. Þá var hjólið fært á lögreglustöð þar sem ekki er vitað um eiganda þess. Þá er þess sérstaklega getið í dagbók lögreglu að ekki hafi verið um ungling að ræða heldur „mann sem er að nálgast fimmta tuginn.“ Lögregla stöðvaði fleiri ökumenn í gærkvöldi og í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Þá var einn ökumaðurinn handtekinn í Laugardalnum grunaður um akstur gegn rauðu ljósi og vörslu og sölu fíkniefna. Hann var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Þá var ung kona í annarlegu ástandi handtekin í Breiðholti á tólfta tímanum. Konan er grunuð um eignaspjöll og var vistuð sökum ástands í fangageymslu lögreglu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Fleiri fréttir Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira