Efling potar í þekkt fólk úr skemmtanaiðnaðinum vegna auglýsinga Eldum rétt Jakob Bjarnar skrifar 13. desember 2019 20:30 Ilmur, Salka Sól og Emmsjé Gauti í hlutverkum sínum. Eldum Rétt „
Eldum rétt rekur nú auglýsingaherferð með þekktum einstaklingum úr skemmtanaiðnaðinum, þar á meðal Emmsjé Gauta, Sölku Sól og Ilmi Kristjánsdótur.“ Þetta þykir stéttarfélaginu Eflingu mikilvægt að komi fram í samhengi við deilur Eflingar og Eldum rétt í ljósi upplýsinga sem fram komu í dag þess efnis að Eldum rétt hefði haft sex starfsmenn á leigu í þrjár til fjórar vikur hjá starfsmannaleigunni Menn í vinnu. Efling og Eldum rétt takast nú á fyrir dómi vegna stefnu rúmenskra verkamanna á hendur síðarnefnda fyrirtækinu fyrir ólöglegan launafrádrátt og nauðungarvinnu. Efling rekur málið fyrir Rúmenana. Í tilkynningu á vef Eflingar kemur fram að í dómsskjölum sem lögð hafi verið fram vegna dómsmálsins komi fram að framkvæmdastjóri Eldum rétt hafi sagt fjölmiðlum ósatt þegar málið var til umfjöllunar fyrr á árinu. Menn í vinnu var til umfjöllunar í Kveik árið 2018 sem varð tilefni til mikils uppþots í samfélaginu. Starfsmannaleigan hefur síðan verið úrskurðuð gjaldþrota en vann á dögunum mál gegn starfsmanni ASÍ fyrir ærumeiðingar í fjölmiðlum. Efling minnir á að sömu stjórnendur og ráku Menn í vinnu reki í dag starfsmannaleiguna Seiglu ehf. undir nýrri kennitölu. Kristófer Júlíus Leifsson, framkvæmdastjóri Eldum rétt, tjáði Vísi í júlí að fyrirtækið hefði ráðið starfsfólk frá Mönnum í vinnu og þeir hefðu aðeins unnið þar í fjóra daga. Reikningurinn sem Efling krefðist að yrði greiddur væri fyrir miklu hærri upphæð. Á heimasíðu Eflingar, hvar framkvæmdastjórinn Viðar Þorsteinsson stingur oftast niður penna, er fjallað um nýju dómskjölin. „Umrædd dómsskjöl sýna með óyggjandi hætti að þrír verkamenn frá Mönnum í vinnu unnu í fjórar vikur hjá Eldum rétt og einn í þrjár viku. Þetta má sjá í tímaskýrslum sem lögmannsstofa Eldum rétt lagði sjálf fram. Reikningur frá starfsmannaleigunni til Eldum rétt sýnir fram á hið sama, en þar eru nöfn verkamannanna og talin upp undir liðnum „vöruheiti“.“ Farið er hörðum orðum um Eldum rétt í tilkynningunni og þrír íslenskir listamenn drengir inn í málið. Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir, söng- og leikkonan Salka Sól Eyfeld og rapparinn Emmsjé Gauti. Má ráða að listamennirnir eigi að skammast sín fyrir að taka að sér að auglýsa Eldum rétt en auglýsingarnar hafa verið áberandi í sjónvarpi. „Eldum rétt rekur nú auglýsingaherferð með þekktum einstaklingum úr skemmtanaiðnaðinum, þar á meðal Emmsjé Gauta, Sölku Sól og Ilmi Kristjánsdótur.“
Auglýsinga- og markaðsmál Dómsmál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Efling telur engan vafa á að Eldum rétt beri að axla keðjuábyrgð "Í stað þess að gangast við ábyrgð sinni hefur Eldum rétt kosið að taka upp sömu málsvörn og Menn í vinnu, nefnilega að samningarnir sem verkamennirnir undirrituðu hafi leyft frádrátt af launum,“ segir í tilkynningunni. 7. júlí 2019 15:47 Fréttastofa í Rúmeníu fjallar um aðbúnað verkamanna á Íslandi Rúmenskir fréttamenn ræddu meðal annars við Helga Seljan og Drífu Snædal. 13. desember 2019 15:39 Eldum rétt hafnaði sáttatilboði Eflingar í máli Rúmena Efling segir þetta vera í annað sinn sem Eldum rétt hafni sáttatilboði Eflingar. 6. júlí 2019 11:05 Telur að verið sé að teygja sig út fyrir lög með kröfu um miskabætur Verkalýðshreyfingin teygir sig út fyrir lög um starfsmannaleigur með því að krefja fyrirtæki um miskabætur. Þetta er mat forstöðumanns hjá Samtökum atvinnulífsins. 8. júlí 2019 20:00 Segir það einlægan vilja að standa undir keðjuábyrgð Fyrirtækið Eldum rétt ehf. hefur sent frá sér tilkynningu þar sem tilkynningu Eflingar frá því í gær er svarað. 7. júlí 2019 10:18 Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira
Efling telur engan vafa á að Eldum rétt beri að axla keðjuábyrgð "Í stað þess að gangast við ábyrgð sinni hefur Eldum rétt kosið að taka upp sömu málsvörn og Menn í vinnu, nefnilega að samningarnir sem verkamennirnir undirrituðu hafi leyft frádrátt af launum,“ segir í tilkynningunni. 7. júlí 2019 15:47
Fréttastofa í Rúmeníu fjallar um aðbúnað verkamanna á Íslandi Rúmenskir fréttamenn ræddu meðal annars við Helga Seljan og Drífu Snædal. 13. desember 2019 15:39
Eldum rétt hafnaði sáttatilboði Eflingar í máli Rúmena Efling segir þetta vera í annað sinn sem Eldum rétt hafni sáttatilboði Eflingar. 6. júlí 2019 11:05
Telur að verið sé að teygja sig út fyrir lög með kröfu um miskabætur Verkalýðshreyfingin teygir sig út fyrir lög um starfsmannaleigur með því að krefja fyrirtæki um miskabætur. Þetta er mat forstöðumanns hjá Samtökum atvinnulífsins. 8. júlí 2019 20:00
Segir það einlægan vilja að standa undir keðjuábyrgð Fyrirtækið Eldum rétt ehf. hefur sent frá sér tilkynningu þar sem tilkynningu Eflingar frá því í gær er svarað. 7. júlí 2019 10:18