„Enginn vill mæta Liverpool“ Anton Ingi Leifsson skrifar 12. desember 2019 08:00 Andy Robertson í leik með Liverpool. vísir/getty
Andy Robertson, bakvörður Liverpool, segir að ekkert lið vilji mæta Bítlaborgarliðinu er dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar á morgun. Liverpool tryggði sig áfram í 16-liða úrslitin með 2-0 sigri á Red Bull Salzburg í síðasta leik riðilsins en Liverpool sem á titil að verja verður þar af leiðandi í pottinum á morgun. „Við berum virðingu fyrir öllum andstæðingum en við vitum hvernig við höfum gert hlutina síðustu tvö ár og enginn vill spila gegn okkur. Það er klárt en við verðum að sýna það,“ sagði skoski fyrirliðinn. „Við getum ekki bara stólað á það heldur þurfum við að halda áfram að sýna hvers vegna liðin vilja ekki spila gegn okkur. Við munum bíða og sjá hverja við fáum.“ "The way we've done things in the last two years, nobody wants to play against us." Andy Robertson says Liverpool are 'respected' as they prepare for the #ChampionsLeague last 16 draw. In full: https://t.co/6uype3JiQhpic.twitter.com/ajUpuAdyH4— BBC Sport (@BBCSport) December 12, 2019 „Við vitum að það verður erfitt verkefni en við hlökkum til þess því við viljum aftur fara lengra í keppninni.“ Liverpool hefur síðustu tvö ár unnið lið eins og Manchester City, Roma og Bayern München í Meistaradeildinni en frægasti sigurinn er gegn Barcelona í undanúrslitunum í maí. „Það er andrúmsloftið sem við höfum búið til síðustu tvö ár. Liðið hefur verið í úrslitaleiknum síðustu tvö ár og hefur augljóslega tapað einum og unnið einn. Það er borin virðing fyrir okkur.“
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Handbolti Fleiri fréttir Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ „Haaland er þetta góður“ Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Úlfarnir ráku Pereira Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Liverpool loks á sigurbraut á ný Pedro afgreiddi Tottenham Sjá meira