Margur einlægur Eurovision-aðdáandinn sármóðgaður vegna myndbands Ferrells Jakob Bjarnar skrifar 18. maí 2020 13:54 Will Ferrell í nýjum Eurovisionmyndbandi sínu og Flosi Jón ásamt vinum sínum. Hann segir rétt að mörgum Eurovisionaðdáanda sé brugðið.
Klippa úr væntanlegri mynd Will Ferrells, sem fjallar um Eurovision-keppnina, sem birtist nú um helgina leggst ekki vel í einlæga Eurovision-aðdáendur. Þeir óttast að þarna sé verið að draga keppnina sundur og saman í nístandi háði. Gera grín að því allra heilagasta. Flosi Jón Ásgeirsson, formaður Félags áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (FÁSES) segir það rétt. Margir einlægir hafi lýst því yfir á ýmsum spjallþráðum þar sem umræðuefnið er Eurovisionkeppnin að þeim lítist ekki á blikuna. Og séu hreinlega móðgaðir. Fréttablaðið sópaði upp nokkrum slíkum ummælum af Twitter í gærkvöldi. Klippan sýnir dúettinn, þau Lars Erickssong (Will Ferrell) og Sigrit Ericksdottir (Rachel McAdamas) flytja lagið Volcano man. Myndin, sem ber tilinn Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga er væntanleg á Netflix 26. júní. Myndin var meðal annars tekin á Húsavík og koma ýmsir íslenskir leikarar fram í myndinni. Íslendingar eru mestu Eurovision-flónin Vísir leitaði til eins þeirra, Jóhannesar Hauks Jóhannessonar, með það fyrir augum að leita svara við þeirri spurningu hvort einlægir aðdáendur Eurovision-keppninnar hafi ástæðu til að óttast? Hvort innistæða sé fyrir vægu taugaáfalli þeirra, hvort þarna sé ætlunin að draga Eurovisonáhuga Íslendinga sundur og saman í nístandi háði? Jóhannes Haukur segist að samkvæmt handriti þá megi vænta þess að Íslendingar verði dregnir sundur og saman í nöpru háði í nýrri mynd Ferrells. „Uppleggið er að þau keppa fyrir Íslands hönd,“ segir Jóhannes Haukur. Hann veit ekki hversu miklu hann má kjafta: „En ekki endilega á þeim forsendum að hafa verið bestu keppendurnir. Það er smá tvist með það. En heilt yfir þá er auðvitað verið að gera grín að okkur. En líka öllum hinum. Eurovision sem heild.“ En, við erum mestu Eurovisionflónin? „Já. Klárlega. Litla þjóðin sem vinnur aldrei.“ Þannig að einlægir Júróvisíónaðdáendur eiga ekki von á góðu? „Mögulega ekki. Maður veit það samt ekki. Hef náttúrlega ekki séð myndina. En handritið er allavega þannig að það gæti orðið.“ Vísir ræddi jafnframt við formann Fáses, Flosa Jón, um þessa vá sem stendur fyrir dyrum einlægra Euriovison-aðdáenda. Hann segist bara búinn að sjá umrædda klippu og veit ekki alveg við hverju fólk var að búast þegar Will Ferrell er annars vegar. Flosi Jón er mikill og einlægur aðdáandi Eurovision og stendur fyrir sérstöku Eurovision-zumba á netinu. Sjálfur tekur hann lagi Ferrells létt en segist vel skilja þá sem hreinlega lifi fyrir keppnina, að þeim sárni. „Hvort fólk var að búast við einhverri ástríðu og að Eurovision væri miðpunktur alheimsins? Ég hef alltaf sagt að öll umfjöllun sé auglýsing og góð fyrir keppnina. Þetta á eftir að fá fleira fólk til að sýna þessu áhuga. Bandaríkjamenn hafa sýnt því áhuga á að halda svona keppni. Ég held að þetta eigi bara eftir að auka áhuga; hvaða brjálæði er þetta?“ segir Flosi Jón sem sjálfur lætur sér hvergi bregða. Mörgum brugðið En vissulega sé mörgum brugðið. „Jújú, maður sér alveg að það er verið að gera grín en stundum eru bara svona atriði í Eurovision og við höfum alveg eins gaman að því og lögum sem festast í þjóðarsálinni og eru góð.“ Flosi Jón nefnir sem dæmi framlag Azerbaijan nú í ár sem kannski svipi að einhverju leyti til lags Ferrels, það er myndbandinu. Þarna séu ýmsir stílar saman komnir. En ég skil svo sem alveg þá sem eru móðgaðir, því þetta er mikið hitamál fyrir mörgum, lífsstíll fyrir mörgum að fylgja Eurovision. Að sjálfsögðu verða þá menn móðgaðir þegar verið er að gera grín að ástríðu þeirra. En ég held að meirihlutinn sjái þetta sem frábært tækifæri, að Euriovision verði þá meira í umræðunni.“ Flosi Jón bendir jafnframt á að ekki hafi verið að sjá lítilsvirðandi framgöngu þegar Will Ferrell mætti til að veita 12 stig fyrir hönd Íslands í sérstökum þætti Ríkissjónvarpsins sem meðal annars gekk út á að finna hvaða lag Ísland hefði valið ef keppnin hefði ekki verið felld niður vegna Covid-19. Flosi Jón. Að sjálfsögðu verða menn móðgaðir þegar verið er að gera grín að ástríðu þeirra. „Hann virtist nú ekki gera lítið úr okkur Íslendingum þegar hann gaf 12 stiginn og fannst bara heiður að vera með. Og ef einhver hefur haldið að ekki sé hægt að gera grín að Eurovision hefur hann ekki verið að horfa á sömu keppnina og ég sem fór að fylgjast með 1990. Þegar Stjórnin kom og gerði okkur öll brjáluð með velgengni sinni.“ Margir sem lifa fyrir Eurovision Flosi Jón bætir því við að Eurovisonaðdáendur elski alla athygli. „Ég veit ekki betur en maður sé fyrstur til að fylgja eftir kamerunum þegar maður er í salnum. Sálfræðingar hafa gaman að sjá ástríðuna hvað við erum tilbúin að ganga langt.“ Með öðrum orðum, formaður Fáses er á báðum áttum, hvað honum eigi að finnast um þetta framtak Ferrells, hvort þetta megi heita niðrandi eða ekki. Og ítrekar að hann skilji þá aðdáendur sem eru móðgaðir. „Menn lifa fyrir þetta. Sárt að sjá þegar verið er að leggja barnið sitt í einelti,“ segir Flosi Jón en tekur jafnframt fram að þetta sé kannski fullsterkt líkingarmál. „Og maður verður stundum móðgaður þegar einhver er að setja út á landið okkar Ísland sama í hvaða formi það er.“
Eurovision Eurovision-mynd Will Ferrell Tengdar fréttir Will Ferrell varð hugfanginn af Eurovision: „Þetta var það ruglaðasta sem ég hef séð“ Bandaríski gamanleikarinn Will Ferrell var í heimsókn hjá skyldmennum eiginkonu sinnar í Svíþjóð þegar hann komst fyrst á snoðir um tilvist Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision. 17. maí 2020 14:00 Frumsýna Eurovision-mynd Will Ferrell í júní Eurovision-myndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga verður frumsýnd á Netflix þann 26. júní næstkomandi. 16. maí 2020 11:35 Will Ferrell er Eldfjallamaðurinn í fyrsta laginu úr Eurovisionmyndinni Nú fer að líða að því að Eurovision-kvikmynd Will Ferrell komi út á Netflix en frumsýningunni var frestað um tíma vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. 15. maí 2020 09:13 Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Sjá meira
Will Ferrell varð hugfanginn af Eurovision: „Þetta var það ruglaðasta sem ég hef séð“ Bandaríski gamanleikarinn Will Ferrell var í heimsókn hjá skyldmennum eiginkonu sinnar í Svíþjóð þegar hann komst fyrst á snoðir um tilvist Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision. 17. maí 2020 14:00
Frumsýna Eurovision-mynd Will Ferrell í júní Eurovision-myndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga verður frumsýnd á Netflix þann 26. júní næstkomandi. 16. maí 2020 11:35
Will Ferrell er Eldfjallamaðurinn í fyrsta laginu úr Eurovisionmyndinni Nú fer að líða að því að Eurovision-kvikmynd Will Ferrell komi út á Netflix en frumsýningunni var frestað um tíma vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. 15. maí 2020 09:13