Minnst fjórtán látnir í hörðum jarðskjálfta í Tyrklandi Kjartan Kjartansson skrifar 24. janúar 2020 22:13 Íbúar í bænum Elazig virðir fyrir sér hús sem hrundi í jarðskjálftanum í kvöld. AP/IHA
Á annan tug manna eru látnir og hundruð eru slasaðir eftir jarðskjálfta upp á 6,8 stig sem reið yfir austanvert Tyrkland í kvöld. Fjöldi manns er enn sagður fastur í rústum húsa sem hrundu í skjálftanum. Jarðskjálftinn reið yfir klukkan 20:55 að staðartíma, 17:55 að íslenskum tíma. Upptök hans voru á um 6,7 kílómetra dýpi nærri bænum Sivrice í Elazig-héraði í austanverðu Tyrklandi, að sögn almannavarna landsins. Nokkrir smærri eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið, þeir sterkustu upp á 5,4 og 5,1 stig. AP-fréttastofan segir að talið sé að minnsta kosti fjórtán hafi farist og rúmlega þrjú hundruð hafi slasast. Herinn hefur verið kallaður út vegna hörmunganna en auk þess hefur björgunarlið frá nágrannahéruðum sem ræst út til hjálpar. Björgunarfólk leitar nú að fólki í rústum fjögurra til fimm hæða byggingar sem hrundi í bænum Maden í Elazig. Nokkrar byggingar til viðbótar hrundu í bænum Sivrice. Árið 2010 fórst 51 í jarðskjálfta af stærðinni sex. Bandaríska jarðfræðistofnunin telur að skjálftans hafi einnig orðið vart í Sýrlandi, Georgíu og Armeníu.
Tyrkland Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Nokkuð um hávaðaútköll Innlent Fleiri fréttir Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Sjá meira