Notuðu rússneska þotu í framboðsauglýsingu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 15. september 2020 14:41 Umrædd auglýsing
Nefnd sem sér um að safna fjármunum fyrir forsetaframboð Donald Trump forseta Bandaríkjanna hefur fjarlægt auglýsingu þar sem hvatt var til stuðnings við bandaríska hermenn. Ástæðan er sú að rússneskar herþotur voru notaðar í auglýsingunn. Málið þykir hið vandræðalegasta fyrir Trump Make America Great Again Committee sem rekin er sameiginlega af framboði Trump og Repúblikanaflokknum. Málið snýst um auglýsingu sem birt var víðsvegar á netinu þann 11. september síðastliðinn þar sem almenningur er hvattur til þess að styðja bandaríska hermenn. Á mynd sem fylgir auglýsingunni má sjá þrjá hermenn og þrjár herþotur. Í ljós hefur hins vegar komið að umræddar herþotur eru rússneskar, nánar tiltekið MiG-29 þotur. Fjallað er um málið á vef Politico í Bandaríkjunum þar sem rætt er við sérfræðing um herþotur sem segir alveg klárt að um rússneskar þotur sé að ræða. Þá er einnig rætt við rússneskan sérfræðing sem staðfestir það mat auk þess sem að sá sérfræðingur telur að einn af hermönnunum sé með AK-47 hríðskotabyssu, sem einnig er framleidd í Rússlandi. Málið þykir hið vandræðalegasta fyrir framboðið, ekki síst þar semTrump hefur frá því að hann tók við embætti verið harðlega gagnrýndur fyrir samskipti hans við Vladimír Pútín Rússlandsforseta, auk þess sem að framboð hans hefur mátt sæta rannsókn vegna meintra afskipta Rússa af forsetakosningunum árið 2016.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira