Vertinn á Brewdog steinhissa á svari Þórólfs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. september 2020 16:21 BrewDog er á horni Frakkastígs og Hverfisgötu. Vísir/Birgir Andri Birgisson, framkvæmdastjóri Brewdog Reykjavík á Hverfisgötunni, segist hafa fengið létt fyrir hjartað þegar hann fylgdist með upplýsingafundi Embættis landlæknis og almannavarnadeildar í dag. Þar kom Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir af fjöllum spurður hvort eðlilegt væri að annar staðurinn þar sem fjölmargir hefðu smitast á dögunum væri enn opinn. Sagðist hann hafa haldið að báðum stöðunum, sem hann nefndi ekki en eru The Irishman við Klapparstíg og Brewdog Reykjavík á horni Hverfisgötu og Frakkastígs, hefði verið lokað. Talið er að um helming smita í núverandi bylgju megi rekja til fólks sem sótti staðina tvo fyrir rúmri viku. Sjá má svar Þórólfs við spurningunni sem Alma Ómarsdóttir, fréttamaður á Rúv, bar upp í spilaranum. „Það er ekki eins og þetta sé leyndarmál. Við höfum haft opið allt Covid,“ segir Andri í samtali við Vísi. Tíu dagar eru liðnir frá smitkvöldinu mikla og segist Andri hafa unnið náið með smitrakningarteymi almannavarna síðan. Það hafi því komið honum í opna skjöldu að sóttvarnalæknir teldi að staðnum hefði verið lokað. Fleiri þúsund manns horfa á upplýsingafundina á degi hverjum. Veitingastaður eða krá? Misskilningurinn gæti legið í því að The Irishman er skilgreindur sem bar. Brewdog Reykjavík er veitingastaður með vínveitingaleyfi. Staðurinn leggur mikið upp úr fjölbreyttu úrvali af bjór úr smiðju staðarins. Þá er fjölbreyttur matur í boði. Heilbrigðisráðherra ákvað á föstudag að tilmælum sóttvarnalæknis að loka skemmtistöðum og krám yfir helgina. Sú lokun var svo framlengd fram yfir næstu helgi. Til svipaðra aðgerða var gripið í bylgjunni í vor. Veitingastaðir fengu að hafa opið að vissum takmörkunum settum en skellt í lás á krám og skemmistöðum. Brewdog að innan. Brewdog er hluti af alþjóðlegri keðju veitingastaða og brugghúsa sem bruggar sinn eigin bjór.Brewdog Andri segir Brewdog með veitingaleyfi og þar snúist allt um veitingar. Enginn mæti og valsi um staðinn. Fólk þurfi að bíða eftir því að vera vísað til sætis, tveir metrar séu á milli allra borð, pantanir séu snertilausar og grímur í boði fyrir alla. Þá hafi stór hluti rekstursins snúið að heimsendingum á mat og Take-Away. Eftir að smitin komu upp á dögunum hafi allir starfsmenn farið í Covid-test og fengið niðurstöðu út úr því. „Hvað getum við eiginlega gert meira?“ Hann segist hafa fengið þau skilaboð frá almannavörnum í kjölfar fundarins í dag að sóttvarnalæknir hafi ekki haft þær upplýsingar að Brewdog væri veitingastaður. Tilkynning Brewdog til viðskiptavina laugardaginn 19. september Kæru viðskiptavinir. Við fengum þær upplýsingar frá smitrakningateymi síðdegis á fimmtudag að hugsanlega hafi smitaður viðskiptavinur komið til okkar föstudaginn 11. september. Allt okkar starfsfólk fór strax í skimun í gær, föstudaginn 18. september. Fyrr í dag fékk svo einn starfmaður okkar símtal um að hann væri smitaður af COVID-19. Allt annað starfsfólk fékk neikvæða útkomu. Þessi umræddi starfsmaður var síðast á vakt um síðustu helgi, var bæði föstudag og laugardag, og hefur ekki komið inná staðinn síðan. Grunur leikur á að hann hafi smitast af gesti frá þessum föstudegi. Í kjölfar þeirrar vitneskju var unnið þétt með smitrakningateyminu og höfum við fengið hrós frá þeim fyrir góða samvinnu. Allir starfsmenn voru sendir í skimun ásamt þeim viðskiptavinum sem smitrakningateymið hafði samband við. Við viljum hvetja alla viðskiptavini okkar sem voru á staðnum á föstudaginn 11. september eða laugardaginn 12. september til þess að fara í skimun. Nánari upplýsingar um viðbrögð er að finna á covid.is og heilsuvera.is. Pössum fjarlægðamörk, sprittum okkur og verum öðrum til fyrirmyndar. Stay safe, Andri Birgisson, framkvæmdastjóri. Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Kæru viðskiptavinir. Við fengum þær upplýsingar frá smitrakningateymi síðdegis á fimmtudag að hugsanlega hafi smitaður viðskiptavinur komið til okkar föstudaginn 11. september. Allt okkar starfsfólk fór strax í skimun í gær, föstudaginn 18. september. Fyrr í dag fékk svo einn starfmaður okkar símtal um að hann væri smitaður af COVID-19. Allt annað starfsfólk fékk neikvæða útkomu. Þessi umræddi starfsmaður var síðast á vakt um síðustu helgi, var bæði föstudag og laugardag, og hefur ekki komið inná staðinn síðan. Grunur leikur á að hann hafi smitast af gesti frá þessum föstudegi. Í kjölfar þeirrar vitneskju var unnið þétt með smitrakningateyminu og höfum við fengið hrós frá þeim fyrir góða samvinnu. Allir starfsmenn voru sendir í skimun ásamt þeim viðskiptavinum sem smitrakningateymið hafði samband við. Við viljum hvetja alla viðskiptavini okkar sem voru á staðnum á föstudaginn 11. september eða laugardaginn 12. september til þess að fara í skimun. Nánari upplýsingar um viðbrögð er að finna á covid.is og heilsuvera.is. Pössum fjarlægðamörk, sprittum okkur og verum öðrum til fyrirmyndar. Stay safe, Andri Birgisson, framkvæmdastjóri.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira