Viktor Gísli hafði betur í Íslendingaslagnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. október 2020 19:10 Viktor Gísli hefur átt betri leiki en það kom ekki að sök í kvöld. vísir/andri marinó
Viktor Gísli Hallgrímsson var á sínum stað er GOG vann Ribe-Esjberg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Rúnar Kárason, Gunnar Steinn Jónsson og Daníel Ingason leika með Ribe-Esjberg. Þá voru Arnar Birkir Hálfdánarson og Sveinbjörn Pétursson í eldlínunni er lið þeirra EHV Aue tapaði sínum fyrsta leik á leiktíðinni í þýsku B-deildinni. Leikur GOG og Ribe-Esjberg var einkar jafn í fyrri hálfleik og voru það gestirnir sem voru marki yfir er flautað var til hálfleiks, staðan þá 14-13 Ribe-Esjberg í vil. Í þeim síðari hrökk allt í baklás hjá Rúnari, Gunnari Steini og félögum þeirra í Ribe-Esjberg. Heimamenn tóku einfaldlega öll völd á vellinum og fór það svo að þeir unnu leikinn með átta marka mun, lokatölur 33-25 GOG í vil. Það verður seint sagt að Viktor Gísli hafi átt stórleik í marki GOG. Søren Haagen Andreasen, hinn markvörður liðsins, var öflugri í dag. Viktor varði aðeins tvö skot í leiknum á meðan Søren varði sjö stykki. Rúnar fór mikinn í liði Ribe-Esjberg og var markahæstur ásamt Jonas Larholm með fimm mörk hvor. Gunnar Steinn gerði tvö og Daníel eitt. GOG er í 2. sæti á meðan Ribe-Esjberg situr í 10. sæti, alls eru 14 lið í deildinni. Síðarnefnda liðið hefur aðeins unnið einn leik og þarf að fara ná í fleiri stig ef það ætlar sér ekki að vera í fallbaráttu það sem eftir lifir tímabils. GOG hefur hins vegar ekki enn tapað leik og ætlar að gefa Álaborg hörku titilbaráttu. Þá tapaði Íslendingalið EHV Aue á heimavelli fyrir HSV Hamburg í þýsku B-deildinni, lokatölur 35-32 Hamburg í vil. Arnar Birkir Hálfdánarson skoraði þrjú mörk í liði Aue og Sveinbjörn Pétursson varði sex skot í marki liðsins. Var þetta fyrsta tap liðsins í deildinni en liðið hafði unnið fyrstu tvo leiki tímabilsins. Aue situr sem stendur í 5. sæti deildarinnar.
Handbolti Danski handboltinn Þýski handboltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira