Seinka heimsókn sjóðheitra Valsmanna í Þorlákshöfn um einn dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. apríl 2021 13:57 Larry Thomas og félagar í Þór Þorlákshöfn spila ekki fyrr en á föstudagskvöldið. Vísir/Hulda Margrét Leikur Þórsara og Valsmanna í Domino´s deild karla fer ekki fram í Þorlákshöfn á fimmtudagskvöldið heldur tæpum sólarhring síðar.
Kórónuveiran hefur verið að flækjast í Þorlákshöfn síðustu daga og af þeim sökum hefur verið ákveðið að seinka næsta heimaleik körfuboltaliðs bæjarins. „Vegna aðstæðna í Þorlákshöfn, sem ættu að vera flestum kunnar, hefur leikur Þórs Þ. og Vals í Domino's deild karla verið færður af fimmtudeginum 29. apríl og til föstudagsins 30. apríl kl. 18:15,“ segir í tilkynningu frá Körfuknattleikssambandi Íslands. Grunnskólinn í Þorlákshöfn var lagður undir skimun í morgun eftir að kórónuveirusmit greindist meðal nemenda. Hluti smitanna tengist hópsmiti í Þorlákshöfn þar sem þrettán eru nú í einangrun og nítján í sóttkví. Þórsarar töpuðu síðasta leik en höfðu áður unnið þrjá leiki í röð þar á undan og alls átta af ellefu leikjum frá og með síðasta leik þeirra á móti Val. Valsmenn eru aftur á móti búnir að vinna sex leiki í röð í deildinni og eru komnir upp í fjórða sæti deildarinnar. Nú munar aðeins fjórum stigum á Þór og Val. Tveir leikir fara nú fram á föstudagskvöldið en þá fer einnig fram leikur Keflavíkur og KR. Hinir fjórir leikir nítjándu umferðarinnar verða spilaðir á fimmtudagskvöldið.
Dominos-deild karla Þór Þorlákshöfn Valur Mest lesið Staðfestir brottför frá Liverpool Enski boltinn Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Golf Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Fótbolti „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Körfubolti Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Formúla 1 Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Fótbolti Heimamaður setti met í fjölmennasta utanvegahlaupi Íslands Sport Sendu Houston enn á ný í háttinn Körfubolti Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Formúla 1 Fleiri fréttir „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Sendu Houston enn á ný í háttinn „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Diamond: Þurfum að ná í stopp allan leikinn Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 72-90 | Haukar einu skrefi frá Íslandsmeistaratitlinum Styrmir gulltryggði sigur Belfius Mons og var stigahæstur á vellinum „Verið að kveðja góðan mann með mjög glæstan feril“ Sterk liðsheild Denver á meðan Clippers féll á prófinu „Þetta var minn síðasti körfuboltaleikur“ „Ég kom til Íslands með eitt markmið“ Hamar jafnaði einvígið með stórsigri Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 90-105 | Stólarnir komnir í úrslit „Kóngurinn á Íslandi, DeAndre Kane, bjargaði okkur“ Houston knúði fram oddaleik Segir sína menn þurfa að vera í „meistara ásigkomulagi“ „Þeir vilja náttúrulega fleiri leiki líka“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 95-92 | Rosalegasta endurkoma síðari ára „Ég hef hluti að gera hér“ Brynjar Karl svarar fyrir sig: „Ég má ekki verja mig opinberlega“ Goðsögnin Popovich hættur í þjálfun Þurfti bara eitt orð um mestu áskorunina við að mæta Njarðvík Birti myndir af fólki, kalli það illum nöfnum og saki um einelti á meðan Faðir Haliburton fær ekki að mæta á leiki hjá Pacers Brunson sendi Pistons í sumarfrí en Clippers tryggði sér oddaleik Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 86-79 | Haukar taka forystu í úrslitaeinvíginu LeBron um framtíðina: „Hef ekki svar“ Úlfarnir sendu Luka, LeBron og félaga í sumarfrí Martin að ná í úrslitakeppnina eftir allt saman? Annað skiptið í röð sem leikmaður San Antonio er valinn nýliði ársins Luka borgar fyrir viðgerðir á minnismerki um Kobe Sjá meira