Sköpum fleiri störf og brúum stafræna bilið Ragnar Þór Ingólfsson og Jón Ólafur Halldórsson skrifa 30. apríl 2021 13:00 Göngum í takt Þróun og nýting stafrænnar tækni hefur tekið risavaxin og hröð skref síðustu misserin. Vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins hefur þessi þróun orðið svo ör í t.d. verslunar- og þjónustugreinum, að ekki er hægt að lýsa því öðruvísi en sem byltingu. Fyrirtæki og starfsmenn þeirra eru mjög misvel undirbúin því hvernig takast á við þessa byltingu, en gríðarlega miklir þjóðhagslegir hagsmunir eru í húfi, jafnt efnahagslegir sem menningarlegir. Stafræn hæfni okkar allra er því það lykilatriði sem getur skorið úr um hvernig þjóðfélag okkar mun þróast á næstu árum og mun segja til um stöðu okkar í alþjóðlegu samfélagi. SVÞ, VR og Háskólinn í Reykjavík hafa nú um nokkurt skeið unnið að því að koma á samstarfsvettvangi um eflingu stafrænnar hæfni í íslensku atvinnulífi og á vinnumarkaði. Markmið slíks samstarfsvettvangs er ekki síst það að brúa það stafræna bil sem er á milli þeirra sem nýtt geta tækni stafrænnar umbreytingar í sína þágu og þannig notið ávinningsins af henni, og hinna sem eftir sitja. Á það jafnt við fyrirtækin og launafólkið sem hjá þeim starfa. Þar sem um er að ræða samfélagslegt verkefni sem kemur okkur öllum við og hefur það að markmiði að auka lífsgæði með þróun starfa og aukinni þjálfun einstaklinga í ný verkefni sjá VR og SVÞ ekki annað fært í stöðunni en að vinna að því í sameiningu. Þegar kemur að svo stóru samfélagslegu máli verða önnur ágreiningsmál að víkja. VR og SVÞ eru ekki sammála um allt, en í þessu máli göngum við fullkomlega í takti! Stjórnvöld gefi skýr skilaboð Við sem ýtt höfum þessu verki úr vör leggjum áherslu á að stjórnvöld komi að verkefninu af nokkrum lykilástæðum: a. Til að gefa skýr skilaboð um að við viljum skapa einn öflugan samstarfsvettvang þvert á samfélagið þar sem við getum sameiginlega unnið að þessu stóra verkefni. b. Til að undirstrika mikilvægi verkefnisins. c. Og til að sýna stuðning við íslenskt atvinnulíf og fólk á vinnumarkaði í verki. Sama er að segja um okkar fólk í Evrópu allri, en nýlega sendu EuroCommerce, samtök verslunarinnar í Evrópu, og UNI Europe, samtök launafólks í Evrópu frá sér sameiginlega áskorun til Evrópusambandsins og ríkisstjórna aðildarríkjanna um að styðja fyrirtæki og starfsfólk í stafrænni umbreytingu. Stafræna bilið er raunverulegt – hættan er raunveruleg Einstaklingar, fyrirtæki - og þjóðir - sem ekki hafa þá stafrænu hæfni sem þarf, verða á endanum undir. Hér á landi er þetta bil raunverulegt og það fer stækkandi. Stafræna bilið hjá einstaklingum er munurinn á þeim sem kunna að nota tæknina í lífi og starfi og hinna sem ekki kunna það. Störf eru að breytast. Störf sem þarfnast lítillar færni hverfa en þau störf sem skapast kalla á stafræna hæfni og framfarahugarfar. Rannsóknir sýna að með stafrænni umbreytingu eru tækifæri til að skapa fleiri störf en þau sem hverfa. Störfin eru betur launuð, verðmætari og færa má rök fyrir því að þau séu meira gefandi fyrir einstaklinginn. Einhæf handavinna hverfur fyrir skapandi hugsun. Breytingarnar eru því þannig að það er eftir miklu að slægjast fyrir einstaklinginn og samtök verzlunarmanna mun auðvitað standa vörð um þá mikilvægu hagsmuni að réttlát skipting verði á þeim verðmætum sem skapast með aukinni stafrænni tækni. Stafræna bilið hjá fyrirtækjunum er munurinn á þeim sem ákveða að nota tæknina til að auka samkeppnishæfni sína og hinna sem eftir sitja, verða undir og munu að lokum að leggja upp laupana. Það þýðir að bæði stjórnendur og starfsfólk þurfa að hafa til að bera stafræna hæfni og framfarahugarfar. Yfirfært á íslenskan veruleika þá er þetta bil enn ískyggilegra og hættan mjög raunveruleg því að hinumegin eru ekki eingöngu tæknivædd íslensk fyrirtæki, heldur risastórir alþjóðlegir tæknirisar sem draga í auknum mæli til sín viðskipti Íslendinga, án þess að skilja nokkuð eftir í þjóðarbúinu. Þessi fyrirtæki greiða hér litla sem enga skatta og þau skapa hér engin störf. Brúarsmíði – allir njóti ávinningsins Að þessu sögðu er það ljóst að brúa þarf stafræna bilið hvort sem um er að ræða einstaklinga, fyrirtæki eða einfaldlega bilið á milli Íslands og annarra þjóða, til að við fáum öll notið ávinningsins sem fylgir stafrænni umbreytingu. Þar má enginn verða útundan. Að óbreyttu drögumst við á endanum það mikið aftur úr að bilið verður ekki brúað. Þessi brú yfir stafræna bilið verður ekki byggð nema með samstilltu átaki. Svo stórt samfélagslegt verkefni kallar á samstarf og samstöðu þvert á þjóðfélagið. Hin Norðurlöndin hafa náð gríðarlega góðum árangri í stafrænni umbreytingu og ljóst að víðtækt samstarf er þar algjört grundvallaratriði. Til að brúa stafræna hyldýpið þarf samstarf atvinnulífs og vinnumarkaðar, samstarf hins opinbera og einkageirans, samstarf við háskólasamfélagið og menntageirann eins og hann leggur sig. Samstarf um verkefni sem varðar samfélagið allt. Komum okkur að verki – saman! Samtal okkar við stjórnvöld hefur verið mjög jákvætt og eindreginn stuðningur við verkefnið. Nú er hins vegar kominn tími til að láta hendur standa fram úr ermum svo hefja megi brúarsmíðina. Við aðra í samfélaginu sem vilja vinna að þessu mikilvæga verkefni með okkur segjum við einfaldlega, komið fagnandi. Hafið samband. Þið getið fundið frekari upplýsingar um verkefnið og hugmyndirnar að baki því á stafraent.is. Í sameiningu brúum við stafræna bilið. Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR og Jón Ólafur Halldórsson formaður SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Þór Ingólfsson Vinnumarkaður Stafræn þróun Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun