Ísorka minnti kærunefnd á sektarheimildir vegna hleðslustöðva Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2021 18:23 Samningur sem Reykjavíkurborg gerði við Orku náttúrunnar um uppsetningu og rekstur götuhleðslu á bílastæðum var úrskurðaður óvirkur fyrr í þessum mánuði. Orka náttúrunna brást við með því að gefa rafmagnið í stöðvunum en í gær óskaði borgin eftir því að straumurinn yrði tekinn af þeim á mánudag vegna athugasemda Ísorku. ON Lögmaður Ísorku sendi kærunefnd útboðsmála bréf með athugasemdum við að rafmagn væri áfram veitt í hleðslustöðvum Orku náttúrunnar í Reykjavík þrátt fyrir að nefndin hefði úrskurðað samning um þær óvirkan. Framkvæmdastjóri Ísorku fullyrti í gær að engin samskipti hefðu átt sér stað við kærunefndina.
Þegar Orka náttúrunnar sendi frá sér tilkynningu um að slökkt yrði á 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla eftir helgi að beiðni Reykjavíkurborgar var fullyrt að það væri vegna athugasemda Ísorku sem kærði útboð á uppsetningu og rekstri stöðvanna. Kærunefnd útboðsmála úrskurðaði samning borgarinnar og Orku náttúrunnar óvirkan 16. júní og bannaði Orku náttúrunnar að nýta stæði sem fyrirtækið fékk undir hleðslustöðvarnar. Sigurður Ástgeirsson, framkvæmdastjóri Ísorku, sendi þá frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnaði því alfarið að fyrirtæki sitt bæri ábyrgð á þeirri ákvörðun að straumur yrði tekinn af stöðvunum. Fullyrti hann, meðal annars í samtali við Vísi, að fyrirtækið hefði ekki verið í neinum samskiptum við kærunefndina frá því að úrskurður hennar var kveðinn upp. „Við höfum ekki átt nein samskipti við borgina út af þessu þessu máli. Við höfum ekki átt nein samskipti við Orku náttúrunnar út af þessu máli. Við höfum ekki átt nein samskipti við kærunefndina frá því að úrskurður féll,“ sagði Sigurður við Vísi í gær. Minntu kærunefndina á heimildir til dagsekta Í uppfærslu Sigurðar við fyrri yfirlýsingu Ísorku sem birtist á vefsíðu fyrirtækisins í dag kemur fram að sú fullyrðing hans „hafi mátt vera skýrari“. Eftir að frétt birtist í Morgunblaðinu mánudaginn 22. júní um að Orka náttúra ætlaði að bregðast við úrskurði kærunefndarinnar með því að endurgreiða notendum hleðslustöðvanna og bjóða ókeypis hleðslu hafi fréttin verið send kærunefndinni til að vekja athygli hennar á ákvörðun Orku náttúrunnar. Í bréfi lögmanns Ísorku kom fram að hvorki Orka náttúrunnar né Reykjavíkurborg hafi virt úrskurð kærunefndarinnar. Tekið var fram að Ísorka hefði falið lögmanninum að vekja athygli nefndarinnar á frétt Morgunblaðsins. „Verður ekki annað séð en að ON sé enn að nýta þau stæði sem félagið fékk til afnota, rétt sem féll niður við uppkvaðningu úrskurðarins 11. júní sl. og gefi nú notendum rafmagn í stað þess að selja,“ sagði í bréfinu til kærunefndarinnar, að því er segir í uppfærðu yfirlýsingu Sigurðar. Vísaði lögmaður í úrskurðarorðið um að óvirkni samningsins fælist því í sér að réttur Orku náttúrunnar til að nýta þau stæði sem fyrirtækið hefur fengið afhent til afnota og réttur þess til að krefjast afhendingar þess eina stæðis sem hann á eftir að fá afhent til afnota falli niður. Sigurður vildi ekki tjá sig frekar við Vísi um málið í dag. Segja Sigurð hafa beðist afsökunar á að hafa farið með rangt mál Orka náttúrunnar áréttaði í dag fyrri yfirlýsingu sína um að Reykjavíkurborg hefði farið fram á að straumur yrði tekinn af hleðslustöðvunum á grundvelli bréfs sem Ísorka sendi kærunefndinni þar sem athygli hafi verið vakin á að Ísorka liti svo á að ekki væri leyfilegt að gefa rafmagn á stöðvunum og nefndinni bent á að hún hefði heimildir til að beita borgina dagsektum. „Eftir fjölda samtala við framkvæmdarstjóra Ísorku í gær og í dag hefur komið í ljós að hann fór með rangt mál og hefur hann beðið framkvæmdastýru ON afsökunar á því. Lögmaður Ísorku sendi umrætt bréf á Kærunefndina eins og ON hefur greint réttilega frá,“ sagði í yfirlýsingu Orku náttúrunnar í dag. Sigurður vildi ekki staðfesta eða hafna þessari lýsingu þegar Vísir bar hana undir hann í dag. Reykjavíkurborg hefur óskað eftir frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar útboðsmála. Í yfirlýsingu Ísorku sagðist Sigurður telja beiðnin eðlilega og að fyrirtæki sitt fagnaði henni.
Bílar Vistvænir bílar Orkumál Reykjavík Hleðslustöðvar Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Sjá meira