Neita að hafa hafnað plássum líkt og þingmenn halda fram Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. nóvember 2021 16:42 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Vísir/Vilhelm Heilbrigðisráðuneytið segir fullkomlega úr lausu lofti gripið að Hrafnista hafi viljað og geti tekið við á annað hundrað öldruðum. Sömuleiðis að staðið hafi á ráðuneytinu að semja við Heilsuvernd um á þriðja hundrað hjúkrunarrýma. Hvoru tveggja sé rangt.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar. Dropinn sem virðist hafa fyllt mæli ráðuneytisins voru fullyrðingar Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, og Guðrúnar Hafsteinsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í Kastljósi í gær. Staðan í Covid-faraldrinum og ástandið á Landspítalanum var meðal annars til umræðu í þættinum. Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur ríkisstjórnina hafa brugðist „Okkur skortir sérhæft starfsfólk. Það sem er líka mjög stórt vandamál er það að spítalinn er fullur af fólki sem á að vera á hjúkrunarheimilum. Við getum kannski sagt að ríkisstjórnin hafi brugðist í því að vilja ekki leita úrræða úti í samfélaginu til dæmis í gegnum einkarekstur,“ sagði Guðrún sem kjörin var þingmaður Sjálfstæðisflokksins í nýliðnum kosningum. Guðrún Hafsteinsdóttir á þingmannakynningu í haust.Vísir/Vilhelm „Hér eru aðilar sem eru tilbúnir að taka við tugum sjúklinga í hjúkrunarrými en ráðuneytið hefur ekki viljað fara samningaleið þangað vegna þess að það er fyrir utan hið opnibera kerfi. Við leysum ekki vanda heilbrigðiskerfisins eingöngu með opinberum rekstri,“ bætti Guðrún við. Inga Sæland tók boltann á lofti. „Ég tek undir það. Það þarf blandaðan rekstur. Það voru ekki bara nokkrir tugir hjúkrunarrýma sem voru í boðinu heldur á þriðja hundrað. Ekki bara Hrafnistuheimilin sem voru tilbúin að taka við á annað hundrað eldri borgurum í umönnun og búsetu heldur líka Heilsu..., hvað heitir það, uppi í Urðarhvarfi,“ sagði Inga og átti við Heilsuvernd. Inga Sæland er formaður Flokks fólksins sem vann mikinn sigur í nýafstöðnum kosningum.Vísir/Vilhelm „Þeir buðu held ég fyrir tveimur árum, eða hálfu öðru ári, upp á 130 hjúkrunarrými. Það er slegið út af borðinu. Þetta er með hreinum ólíkindum í ljósi þess að við vitum að langdýrustu legurýmin eru líka á Landspítalanum.“ Eigandi húsnæðisins hafi sagt nei Í tilkynningu ráðuneytisins segir að fyrirtækið Heilsuvernd hafi vissulega boðið fram húsnæði í Urðarhvarfi 8 fyrir rekstur hjúkrunarrýma á síðasta ári fyrir umfangsmikla öldrunarþjónustu, meðal annars rekstur hjúkrunarrýma. Teitur Guðmundsson er framkvæmdastjóri Heilsuverndar. „Sjúkratryggingar Íslands áttu í viðræðum við Heilsuvernd á þessu ári um slíkt verkefni. Þessum viðræðum var sjálfhætt þegar eigandi húsnæðisins (sem er ekki fyrirtækið Heilsuvernd) lýsti yfir að húsnæðið væri ekki til ráðstöfunar fyrir verkefnið. Rétt er að taka fram að ráðast hefði þurft í viðamiklar framkvæmdir og breytingar á húsnæðinu áður en að hægt hefði verið að opna þar hjúkrunarrými fyrir aldraða og sem fyrr segir stóð það húsnæði ekki til boða þegar til átti að taka.“ Urðarhvarf 8 er í eigu Elliðaárdals ehf sem er að langstærstum hluta í eigu Þorvaldar Gissurarsonar, forstjóra og eiganda verktakafyrirtækisins ÞG Verk. Fagna öllu frumkvæði sem leiði til fleiri hjúkrunarrýma Þá sé fullyrðing um vilja og getu Hrafnistuheimilanna um að taka við á annað hundrað öldruðum algjörlega úr lausu lofti gripin. „Aftur á móti hefur heilbrigðisráðuneytið átt í góðu samstarfi við rekstraraðila hjúkrunarheimila, þar með talda Hrafnistu sem rekur átta hjúkrunarheimili í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ og Reykjanesbæ, um leiðir til að fjölga hjúkrunar- og dagdvalarrýmum vegna brýnnar þarfar og meðal annars til að mæta vanda Landspítala sem hefur átt í erfiðleikum með að útskrifa fólk að lokinni meðferð, samhliða miklu álagi vegna Covid-19. Á gamla Sólvangi í Hafnarfirði verður á næstu vikum opnuð ný hjúkrunardeild fyrir 11 aldraða og eiga Sjúkratryggingar Íslands í viðræðum við Öldung hf. sem rekur hjúkrunarheimilið Sóltún í Reykjavík, um rekstur þeirra. Í gamla Sólvangi verða einnig opnuð í byrjun næsta árs 39 rými til skammtímadvalar og endurhæfingar fyrir aldraða. Þessu til viðbótar standa nú yfir miklar húsnæðisframkvæmdir við húsnæði Landspítala á Landakoti vegna opnunar 30 nýrra endurhæfingarrýma og hefur hluti þeirra þegar verið tekinn í notkun,“ segir í tilkynningunni. Líða fer að jólum með tilheyrandi stemmningu á Hrafnistu.Vísir/Vilhelm Einkaaðilar og sjálfseignarstofnanir sinni umfangsmiklum rekstri hjúkrunarheimila hér á landi og hafi gert til margra áratuga. „Um uppbyggingu húsnæðis hjúkrunarheimila og rekstur þeirra gilda sömu lög, reglur og viðmið, hvort heldur sem í hlut eiga opinberir aðilar eða einkaaðilar. Heilbrigðisráðuneytið fagnar öllu frumkvæði sem rúmast innan laga og reglna og leitt getur til skjótrar fjölgunar hjúkrunarrýma fyrir aldraða.“
Heilbrigðismál Landspítalinn Hjúkrunarheimili Eldri borgarar Mest lesið Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Erlent Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Innlent Aflvana togari hættulega nálægt landi Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Innlent Fleiri fréttir Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Sjá meira