Juventus skrefi nær Meistaradeildarsæti með sigri á Udinese Atli Arason skrifar 15. janúar 2022 21:30 Paulo Dybala skoraði flott mark í kvöld. Getty Juventus er aftur komið á sigurbraut eftir tap gegn Inter í ítalska bikarnum í vikunni. Juventus tók á móti Udinese á Allianz Stadium í ítölsku Serie A deildinni í leik sem heimamenn unnu 2-0. Juventus var með stjórn á leiknum nánast allan tímann. Paulo Dybala skoraði fyrsta mark leiksins á 19. mínútu eftir flottan samleik við Arthur og Moise Kean berst boltinn aftur til Dybala inn í vítateig sem klárar færið sitt snyrtilega með innanfótarskoti í fjærhorn marksins. Þrátt fyrir mikla yfirburði þá létu mörkin á sér standa. Á 57. mínútu kemur Mattia De Sciglio inn á völlinn af varamannabekknum og rúmum 20 mínútum síðar á hann frábæra fyrirgjöf af vinstri vængnum inn á vítateig þar sem Bandaríkjamaðurinn Winston McKennie rís hæst og kollspyrna Kanans syngur í netinu. Með sigrinum er Juventus komið í 41 stig í 5. sæti deildarinnar, jafnt Atalanta að stigum en Atalanta á tvo leki til góða á Juve. Udinese er í 14 sæti með 20 stig. Ítalski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn