Valskonur áttu ekki í vandræðum með HK Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. febrúar 2022 15:00 Thea Imani Sturludóttir skoraði fjögur mörk í öruggum sigri Vals. Vísir/Hulda Margrét Valur vann afar sannfærandi níu marka sigur, 23-14, er liðið heimsótti HK í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.
Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og lítið skorað. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var staðan jöfn, 4-4. Valskonur vöknuðu þá til lífsins og náðu fimm marka forystu áður hálfleikurinn var á enda, staðan 13-8 þegar gengið var til búningsherbergja. Heimakonum í HK gekk bölvanlega að skora mörk í síðari hálfleik, en þegar um tíu mínútur voru til leiksloka var staðan orðin 20-11, Valskonum í vil. Gestirnir kláruðu að lokum öruggan níu marka sigur, 23-14. Hildigunnur Einarsdóttir og Thea Imani Sturludóttir voru markahæstar í liði Vals með fjögur mörk hvor. Þá átti Sara Sif Helgadóttir frábæran leik í markinu og varði 14 skot af þeim 24 sem hún fékk á sig, en það gerir tæplega 60 prósent markvörslu. Í liði HK var Jóhanna Margrét Sigurðardóttir atkvæðamest með sex mörk. Valskonur sitja í öðru sæti deildarinnar með 20 stig eftir 15 leiki, einu stigi á eftir toppliði Fram sem hefur þó leikið tveimur leikjum minna. HK-ingar sitja hins vegar í næst neðsta sæti deildarinnar með níu stig.
Olís-deild kvenna Valur HK Mest lesið Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport ÍA – Víkingur R. | Toppliðið í bikarleik uppi á Skaga Íslenski boltinn Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira