„Ég var ógeðslega svekktur“ Elísabet Hanna skrifar 17. maí 2022 22:01 Hreimur fer yfir allan ferilinn og rifjar meðal annars upp þegar hann hitti Beyoncé. Daniel Thor Tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heimisson rifjar upp ævintýrið í kringum Land og syni þegar sveitin var á leiðinni utan þar sem hún ætlaði að slá í gegn. Örlögin gripu aftur á móti í taumana þann 11. september 2001.
Í veislum með Enrique Iglesias Hreimur var gestur í Jákastinu hjá Kristjáni Hafþórssyni. Þar rifjaði hann upp tímann þegar hljómsveitin Land og synir var komin með annan fótinn til Ameríku þar sem sveitin ætlaði að „slá í gegn” úti í hinum stóra heimi. Strákarnir voru komnir með risa fimm plötu samning og skemmtu sér í veislum með fólki á borð við söngvarann Enrique Iglesias þegar allt breyttist skyndilega. View this post on Instagram A post shared by Hreimur Örn Heimisson (@hreimur78) 11. september 2001 Það var hinn örlagaríka dag 11. september 2001 sem Hreimur átti að fljúga út og finna aðsetur fyrir hljómsveitina á New York svæðinu áður en þeir færu í tónleikaferð um fylkin. Þann dag fékk hann símtal um að hann væri líklega ekki á leiðinni út þar sem allt væri að fara úr skorðum í Ameríku. Þá keyrði hann upp í Stúdíó Sýrland: „Um leið og við löbbum þar inn að þá sáum við seinni flugvélina klessa á turninn og þá vissi ég það bara, þetta verður eitthvað maður.“ Fengu að eiga plötuna Í kjölfarið leið nokkur tími þar sem þeir heyrðu ekkert frá sínum tengiliðum úti en þegar þeir höfðu samband var það til þess að rifta samningnum þar sem þeir töldu Ameríkana aðeins vilja Amerískt efni eftir árásina. Þeir fengu þó að eiga plötuna sjálfir sem hafði verið fjármögnuð og í vinnslu með fyrirtækinu svo hún endaði á því að koma út. Á henni voru til dæmis lögin If, Smile og Summer. View this post on Instagram A post shared by Hreimur Örn Heimisson (@hreimur78) „Þetta var náttúrulega brjálæðislegt ævintýri allt saman en í dag þegar ég horfi til baka, auðvitað er ógeðslega langt síðan, en í dag þú veist ég hefði ekki viljað neitt öðruvísi skilurðu. Hlutirnir fóru eins og þeir fóru, ég var ógeðslega svekktur, ég vann aldrei almennilega úr því en alveg bara í tvö þrjú ár var ég alveg ugh,“ segir Hreimur um tímabilið sem fylgdi á eftir. „Það fór sem fór en síðan bara halda menn áfram.“ Ein stór eftirsjá Hreimur segist eiga eina eftirsjá frá þessu stóra ævintýri sem þessi tími var. Það var þegar hann var kallaður til á Armani viðburð og var kynntur fyrir Destiny's Child stelpunum þar sem drottningin Beyoncé var fremst í flokki. Jón Gísli vinur hans hafði beðið hann um að skila kveðju til hennar ef hann myndi rekast á hana áður en hann fór út og hann gleymdi að skila kveðjunni. „Ég hitti Beyonce og gleymdi að skila kveðjunni, það er ein af stærstu eftirsjánum við allt þetta ævintýri“ Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan en í honum talar hann meðal annars um lagið Vöðvastæltur, Eurovision ævintýrið sem hluti af Vinir Sjonna, Made in sveitin og öll þjóðhátíðarlögin sem hann hefur samið og flutt:
Jákastið Tónlist Bandaríkin Hryðjuverkin 11. september 2001 Tengdar fréttir Þriggja manna ástarsamband án kynlífs Brennslu teymið eru þau Kristín Ruth Jónsdóttir, Ríkharð Óskar Guðnason og Egill Ploder Ottósson en saman sjá þau um morgunþáttinn á FM957. Þau lýsa sambandinu sínu sem þriggja manna ástarsambandi, án kynlífs. 9. maí 2022 20:01 „Ég bara tók framleiðslu á fyrsta laginu mínu og borðaði bara núðlur“ Útvarps- og söngkonan Vala Eiríksdóttir var rétt skriðin upp úr tvítugt þegar hún byrjaði í fjölmiðlum eftir að hafa sótt um á Stöð 2 en verið ráðin inn á Fm957 í afleysingar og hefur verið í útvarpinu síðan. Í dag er hún að starfa á Bylgjunni. 29. apríl 2022 11:30 „Í rúm fimmtán ár lét ég nánast eins og þetta hefði ekki skeð“ „Ég er mikill jákvæðnismaður að eðlisfari. En lífið er ekki annaðhvort svart eða hvítt og auðvitað verðum við að vera umburðarlynd við sjálf okkur þegar við dettum í einhvern neikvæðnisgír eða hlutirnir eru erfiðir. En þá skiptir máli hvernig maður nálgast erfiðleikana,“ segir Arnar Sveinn Geirsson, Mannauðsstjóri SaltPay og varaformaður Krafts. 8. apríl 2022 13:30 Mest lesið Ólöf mætti með Magnús upp á arminn Lífið Hætt að nota föt til að fela sig Tíska og hönnun Hitinn náði nýjum hæðum á klúbbnum Lífið Leikkonan Diane Ladd er látin Lífið Krýndur „kynþokkafyllsti maður ársins“ Lífið Aniston hefur fundið ástina á ný Lífið Með heimsfræg verk sín í sumarbústað sem gerður er úr tveimur eldri húsum Lífið „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Lífið Grateful Dead-söngkona látin Lífið Rífandi stemning í Reykjadal Lífið Fleiri fréttir Stórefnilegir skátar heiðraðir á Bessastöðum Rífandi stemning í Reykjadal Grateful Dead-söngkona látin Með heimsfræg verk sín í sumarbústað sem gerður er úr tveimur eldri húsum Ólöf mætti með Magnús upp á arminn Aniston hefur fundið ástina á ný Krýndur „kynþokkafyllsti maður ársins“ Breiðholtsskóli og Hagaskóli áfram í úrslit í Skrekk Leikkonan Diane Ladd er látin Hitinn náði nýjum hæðum á klúbbnum Málar myndir með vinstri hendi eftir heilablóðfall „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Sjö lykilþættir að árangursríkari samskiptum Stjörnulífið: „Ef fólk hættir að gagnrýna mig svelt ég“ Hefur farið í gegnum sambandsslit, gjaldþrot og fjárkúgunarmál frammi fyrir þjóðinni Leikstýrir kærastanum í stærsta harmleik sögunnar Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Spenna á rafíþróttaæfingu fyrir eldri borgara Dagur Sig genginn í það heilaga Svona er kynlífsþjónusta á Íslandi Tók tíu klukkustundir að komast í búninginn Krakkatían: Dóra landkönnuður, Neyðarlínan og „borgin eilífa“ Kyngdi stoltinu og fjölmargir buðu fram nýra Tchéky Karyo látinn Stjörnurnar á hrekkjavökunni: Louvre-þjófur og vampírur Fréttatía vikunnar: Ríkislögreglustjóri, fellibylur og rasisti Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Heillandi raðhús Evu Maríu og Trausta til sölu Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Fundin eftir sjö vikur á vergangi: „Takk hver sem þú ert“ Sjá meira
Þriggja manna ástarsamband án kynlífs Brennslu teymið eru þau Kristín Ruth Jónsdóttir, Ríkharð Óskar Guðnason og Egill Ploder Ottósson en saman sjá þau um morgunþáttinn á FM957. Þau lýsa sambandinu sínu sem þriggja manna ástarsambandi, án kynlífs. 9. maí 2022 20:01
„Ég bara tók framleiðslu á fyrsta laginu mínu og borðaði bara núðlur“ Útvarps- og söngkonan Vala Eiríksdóttir var rétt skriðin upp úr tvítugt þegar hún byrjaði í fjölmiðlum eftir að hafa sótt um á Stöð 2 en verið ráðin inn á Fm957 í afleysingar og hefur verið í útvarpinu síðan. Í dag er hún að starfa á Bylgjunni. 29. apríl 2022 11:30
„Í rúm fimmtán ár lét ég nánast eins og þetta hefði ekki skeð“ „Ég er mikill jákvæðnismaður að eðlisfari. En lífið er ekki annaðhvort svart eða hvítt og auðvitað verðum við að vera umburðarlynd við sjálf okkur þegar við dettum í einhvern neikvæðnisgír eða hlutirnir eru erfiðir. En þá skiptir máli hvernig maður nálgast erfiðleikana,“ segir Arnar Sveinn Geirsson, Mannauðsstjóri SaltPay og varaformaður Krafts. 8. apríl 2022 13:30