Heldur að Agnar Smári verði X-faktorinn gegn ÍBV Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. maí 2022 13:02 Agnar Smári Jónsson hefur oft verið bestur þegar mest er undir. vísir/Hulda Margrét Róbert Aron Hostert telur að Agnar Smári Jónsson geti reynst Valsmönnum dýrmætur í úrslitaeinvíginu gegn Eyjamönnum um Íslandsmeistaratitilinn.
Agnar Smári hefur lítið komið við sögu í úrslitakeppninni til þessa enda Arnór Snær Óskarsson spilað stórvel í stöðu hægri skyttu. Róbert Aron er samt handviss um að Agnar Smári eigi eftir að reynast Val vel í úrslitaeinvíginu. „Ég held að hann verði X-faktorinn í þessu og ég er búinn að segja það við hann,“ sagði Róbert Aron í viðtali við Stefán Árna Pálsson sem var tekið í Fjósinu á Hlíðarenda. „Hann er alltaf klár og við erum allir klárir. Við erum líka þannig lið, mjög samstilltir. Hann gæti alveg verið gæinn sem klárar þetta fyrir okkur.“ Klippa: Seinni bylgjan - viðtal við Róbert Aron Í leikmannahópi Vals eru nokkrir ungir og afar efnilegir strákar, hin svokallaða hvolpasveit. Róbert Aron hefur engar áhyggjur af öðru en að hún standi sig á stærsta sviðinu. „Jájá, þeir eru búnir að sýna það. Við höfum notið velgengni upp á síðkastið og þeir hafa verið í þeirri stöðu að spila úrslitaleiki og gera vel. Arnór var maður helgarinnar í bikarúrslitunum þannig að þeir ættu að vera komnir með einhverja reynslu í stórum leikjum þar sem pressan er mikil. Ég sé þá halda sama dampi,“ sagði Róbert Aron. Fyrsti leikur Vals og ÍBV í úrslitaeinvíginu hefst klukkan 19:30 í kvöld. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og upphitun Seinni bylgjunnar hefst 18:50.
Olís-deild karla Valur Seinni bylgjan Mest lesið Uppgjörið: KA - Vestri 1-1 | Sæst á jafnan hlut fyrir norðan Íslenski boltinn Lofar Heimi rauðvínsflösku úr efstu hillu Íslenski boltinn Sendir sófasérfræðingum tóninn: „Líklega eini þjálfarinn í heiminum“ Íslenski boltinn Haaland lyfti Man City upp í sjötta sætið Enski boltinn Missir Mbappé af Íslandsförinni? Fótbolti „Ákveðin blæðing stoppuð í dag“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - Þróttur 4-0 | Evrópusætið innan seilingar fyrir FH Fótbolti Sjáðu laugardagshasarinn í Bestu deild karla Fótbolti Sjáðu dramatíkina á Brúnni og mörkin hjá Manchester United og Arsenal Fótbolti „Hann er topp þrír í deildinni“ Körfubolti Fleiri fréttir Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Sjá meira