Öruggt hjá Inter og liðið aftur á sigurbraut Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. ágúst 2022 20:47 Nicolo Barella skoraði og lagði upp í kvöld. Marco Luzzani/Getty Images Eftir tap gegn Lazio um helgina komust liðsmenn Inter aftur á sigurbraut er liðið vann öruggan 3-1 sigur gegn Cremonese í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Joaquin Correa kom heimamönnum í Inter í forystu strax á tólftu mínútu leiksins áður en Nicolo Barella tvöfalaði forskot liðsins stuttu fyrir hálfleikshléið og staðan því 2-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Barella var svo aftur á ferðinni á 76. mínútu þegar hann lagði upp þriðja mark liðsins fyrir Lautaro Martinez, en David Okereke klóraði í bakkann fyrir gestina í uppbótartíma og þar við sat. Niðurstaðan því 3-1 sigur Inter og liðið situr nú í öðru sæti deildarinnar með níu stig eftir fjóra leiki, en Cremonese er enn án stiga á botni deildarinnar. Fótbolti Ítalski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn