„Vandamálið var að við spiluðum í þrjátíu mínútur en ekki sextíu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. september 2022 22:48 Carlos Martin Santos á hliðarlínunni á Hlíðarenda í kvöld. vísir/hulda margrét Carlos Martin Santos, þjálfari Harðar, sagði að fyrri og seinni hálfleikurinn gegn Val hefði verið eins og svart og hvítt.
Harðarmenn voru þrettán mörkum undir í hálfleik, 22-9, en tóku sig taki í seinni hálfleiknum og unnu hann, 19-16. Leikurinn, sem var sá fyrsti í efstu deild í sögu Harðar, tapaðist hins vegar, 38-28. „Fyrir okkur voru þetta tveir leikir; fyrri hálfleikurinn og seinni hálfleikurinn. Í fyrri hálfleik vorum við ekki hérna í Origo-höllinni en í þeim seinni reyndum við og sýndum ýmislegt. Þetta var svolítið langt frá því sem þú þarft að hafa á þessu getustigi en við erum að vinna í því,“ sagði Carlos við Vísi eftir leik. Hann segir að sínir menn hafi þjáðst af hálfgerðum sviðsskrekk í fyrri hálfleik. „Strákarnir eru nýir í þessari deild og voru að spila gegn meisturum síðustu tveggja tímabila. Þetta var hugarfarið hjá strákunum að spila í þessu húsi gegn þessu liði en nokkuð annað,“ sagði Carlos. „Valur er með mjög gott lið, spila góða vörn, eru hraðir og framkvæma einfalda hluti í sókninni.“ Carlos segist sáttur með hvað Harðarmenn sýndu í nánast ómögulegri stöðu í seinni hálfleik. „Í fyrri hálfleik vorum við ekki hérna en í þeim seinni reyndum við að berjast við þá. Það er gott fyrir okkur að spila við þessi lið á þessu getustigi. En vandamálið var að við spiluðum í þrjátíu mínútur en ekki sextíu,“ sagði Carlos að lokum.
Olís-deild karla Hörður Valur Mest lesið Leik lokið: KA - Vestri 1-1 | Sæst á jafnan hlut fyrir norðan Íslenski boltinn Lofar Heimi rauðvínsflösku úr efstu hillu Íslenski boltinn Sendir sófasérfræðingum tóninn: „Líklega eini þjálfarinn í heiminum“ Íslenski boltinn Brentford - Man City | Heldur Haaland áfram þar sem frá var horfið? Enski boltinn Missir Mbappé af Íslandsförinni? Fótbolti Sjáðu laugardagshasarinn í Bestu deild karla Fótbolti „Hann er topp þrír í deildinni“ Körfubolti Sjáðu dramatíkina á Brúnni og mörkin hjá Manchester United og Arsenal Fótbolti „Á endanum fengum við á okkur mark í blálokin“ Enski boltinn Uppgjör: FH - Þróttur 4-0 | Evrópusætið innan seilingar fyrir FH Fótbolti Fleiri fréttir KA áfram eftir frábæran sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ Sjá meira