Segir að enginn hafi verið gagnrýndur meira en Maguire Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. september 2022 10:30 Harry Maguire á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. getty/Harriet Lander Luke Shaw segir að Harry Maguire sé meira gagnrýndur en nokkur leikmaður sem hann veit um.
Maguire var settur á varamannabekkinn hjá Manchester United eftir slaka frammistöðu í fyrstu tveimur deildarleikjum liðsins á tímabilinu. Síðan þá hefur United unnið fjóra deildarleiki í röð. Þótt frammistaðan með United hafi verið upp og ofan hefur Maguire jafnan spilað vel fyrir enska landsliðið. Það gerðist þó ekki í gær en hann fékk á sig vítaspyrnu, sem fyrsta mark Þjóðverja kom úr, og leit einnig illa út í öðru marki þýska liðsins. Englendingar lentu 0-2 undir en komu til baka og leikurinn endaði með 3-3 jafntefli. Shaw tók til varna fyrir Maguire eftir leikinn á Wembley og sagðist aldrei hafa kynnst viðlíka gagnrýni á einn leikmann. „Harry er frábær leikmaður og frábær karakter. Hann hefur fengið mikla gagnrýni, sennilega meiri en ég hef áður kynnst,“ sagði Shaw við BBC. Hann skoraði fyrsta mark Englands í leiknum. „Hann fer aldrei í felur og er alltaf til staðar. Það eru til leikmenn sem fela sig og vilja ekki vera í kastljósinu en hann er alltaf þar. Það sýnir styrkinn og karakterinn sem hann býr yfir.“ Shaw hefur fulla trú á því að Maguire komi sterkur til baka. „Allir vita að hann er ótrúlegur leikmaður. Í augnablikinu er sjálfstraustið ekki til staðar því það er eins og allur heimurinn sé á móti honum. Það er erfitt en við öll stöndum þétt við bakið á honum því hann er mikilvægur leikmaður. Það að hann hafi spilað báða leikina núna sýnir hvað Gareth [Southgate, landsliðsþjálfari Englands] hefur mikla trú á honum. Fólk verður að skilja að hann er stór hluti af enska liðinu og verður að sætta sig við það.“
Enski boltinn Þjóðadeild UEFA Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Sjá meira