Dönum létt eftir kórónuveirukaos Sindri Sverrisson skrifar 18. nóvember 2022 11:30 Kathrine Brothmann og allir aðrir leikmenn danska liðsins mega spila í undanúrslitunum í dag. Getty/Slavko Midzor Eftir umtalsvert krísuástand í herbúðum danska kvennalandsliðsins í handbolta er nú orðið ljóst að allir leikmenn liðsins eru gjaldgengir í leikinn við Svartfjallaland í dag í undanúrslitum EM.
Danir fengu þessar góðu fréttir í gær eftir að allir leikmenn liðsins höfðu verið sendir í kórónuveirupróf. Einn leikmanna liðsins, Kaja Kamp, hafði greinst með kóronuveiruna og þurft samkvæmt reglum mótsins að sæta einangrun. Hið sama átti við um aðstoðarþjálfarann Lars Jörgensen. Samkvæmt frétt TV 2 var því mikið kórónuveirukaos í danska hópnum á miðvikudaginn en hraðpróf gáfu þó til kynna að ekki væru frekari smit í hópnum, og PCR-prófin í gær staðfestu það. CT-gildi hjá Kamp eru nú auk þess nægilega há til þess að hún þarf ekki lengur að vera í einangrun en Jörgensen missir hins vegar af leiknum. „Maður finnur bara fyrir miklum létti, bæði fyrir mig og leikmennina. Það hefur verið mikill erill svo það er gott að allt sé núna klárt. Leikmennirnir geta þá einbeitt sér alfarið að leiknum,“ sagði Morten Henriksen, íþróttastjóri danska handknattleikssambandsins, við TV 2. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Noregur og Frakkland. Leikið verður um verðlaun á sunnudaginn.
Handbolti EM kvenna í handbolta 2022 Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir HK flaug upp í Olís-deildina Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Dramatísk endurkoma Stjörnunnar felldi Selfoss Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Sjá meira