Verður opið hjá ykkur á föstudaginn? Svanhildur Bogadóttir skrifar 2. mars 2023 07:00 Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, hefur lagt fram tillögu í borgarráði um að Borgarskjalasafn Reykjavíkur verði lagt niður í núverandi mynd og mun borgarráð afgreiða hana fimmtudaginn 2. mars. Borgarskjalasafn mun ekki renna saman við Þjóðskjalasafn samkvæmt tillögunni, ekki sameinast, heldur verður Borgarskjalasafnið lagt niður og skjölum þess og verkefnum skipt á milli aðila, án þess að það liggi nánar fyrir og án þess að Borgarskjalasafn sjálft fái að koma þar að. Óljósar hugmyndir eru um að Borgarsögusafn taki við miðlun og útibú Borgarbókasafns taki við afgreiðslu úr skjölunum, þar á meðal oft flóknum aðgangi fræðimanna, flóknum leitum fyrir skrifstofur Ráðhúss og aðgangi að barnaverndarmálum. Engin tímalína liggur fyrir, engin greiningarvinna, engin verkefnaáætlun, engar tölur frá ríkinu um hvað pakkinn kosti. Eina tölurnar sem hafa komið fram er að borgin þurfti að borga fyrir sendiferðabíla og geymslugjald. Ekki er vitað hvort ríkið sé til í að taka við safninu og kosta verkefni þess. Fram hefur komið að borgarstjóri leggur fram tillöguna í sparnaðarskyni en starfsemi Borgarskjalasafns kostar um 175 milljónir af ári, þar af eru 60 milljónir húsaleiga til borgarinnar, tölvugjald til borgarinnar 7 milljón og laun tæplega 100 milljónir. Ekki er þá mikill afgangur. Borgaskjalasafn er ánægt í húsakynnum sínum í Grófarhúsi en borgin hefur samþykkt að safnið þurfi að flytja út úr húsinu til að rýma fyrir stærra bókasafni. Kostaður við nýtt húsnæði af þeim sökum er ekki hægt að skilgreina sem kostnað við skjalasafnið. Á Borgarskjalasafni starfa 11 sérfræðingar við sérhæfð verkefni, níu fastráðnir og tveir lausráðnir; sagnfræðingar, skjalfræðingur, upplýsingafræðingur, lögfræðingur, kerfisfræðingur og verkfræðingur. Þeir hafa mikla yfirsýn yfir borgarkerfið og safnkostinn og eru boðnir og búnir að aðstoða fræðimenn, almenning, borgarstofnanir og aðra. Þeir sinna fjölbreyttum verkefnum við að svara fyrirspurnum, veita borgarstofnunum ráðgjöf um skjalastjórn, skrá skjöl, ljósmynda, skanna, ákvarða með aðgang að trúnaðarupplýsingum, vinna að rafrænni langtímavarðveislu, sinna samskiptum við gefendum, miðla á vef safnsins, undirbúa sýningar, hafa eftirlit með skjalavörslu og svo mætti lengi telja. Safnið er á fullri ferð í stafrænni miðlun sem verður nú á nýjum vef, verið er að kortleggja og afgreiða tilkynningar um rafræn kerfi. Fyrstu vörsluskrár úr gagnakerfum fara að berast á þessu ári og síðan önnur í framhaldi af því. Ekki er vitað hvaða upplýsingar var stuðst við í greinargerð með tillögu borgarstjóra. Ekkert samráð hefur verið haft við borgarskjalavörð eða starfsmenn safnsins um tillöguna og borgarstjóri hefur ekki komið á fund starfsmanna til þess að skýra málið nánari og hvað taki við hjá þeim eftir að safnið hefur verið lagt niður. Borgarskjalavörður fékk fyrst að sjá tillögu um niðurlagningu safnsins 5 dögum eftir að hún var lögð fram. Leyndin sem hefur hvílt á tillögunni og öllum málatilbúningi hefur orðið til þess að skapa óvissu hjá starfsfólki Borgarskjalasafns, borgarstofnunum og almenningi. Fólk spyr starfsmenn hvað verði um okkur og skjölin. Borgarskjalasafn varðveitir skjöl um næstum alla Reykvíkinga, margt af því viðkvæmar upplýsingar. Það má ekki vera óvissa um hvað verði um skjölin og hvernig aðgangi að verði háttað. Þessi óvissa um framtíð safnsins hefur haft þau áhrif að fólk er nú hikandi við að afhenda skjöl sín til safnsins og óljóst er hvar einkaskjalasöfn endi eftir niðurlagningu safnsins. Í gegnum tíðina hafa sumir gefendur tekið fram afhendingu að þeir vilji ekki að skjölin fari á Þjóðskjalasafn eða önnur söfn. Að auki innihalda fjölmörg einkaskjalasöfn trúnaðarmál og gilda sérstök ákvæði um aðgang að þeim. Þar er til að mynda um að ræða skjalasafn Samtakanna ´78, Alnæmissamtökin og söfn stjórnmálamanna, þar sem geta verið viðkvæmar upplýsingar um einstaklinga sem lögfræðingur safnsins sér um afgreiðslu á. Mikilvægt er að skjölin umgangist sérfræðingar sem þekkja og geri sér grein fyrir trúnaði og löggjöf um aðgengi. Fréttaflutningur hefur haft þau áhrif að nokkrir gefendur skjala hafa haft samband við starfsmenn og kannað með að fá skjalasöfn til baka sem þeir afhentu. Þeir spyrja hvenær þeir eigi að koma í síðasta lagi. Við getum ekki svarað því. Starfsmenn hafa verið spurðir hvort safnið verði opið á föstudaginn ef borgarráð samþykkir tillögu um niðurlagningu. Starfsmenn hafa lent í því að vera spurðir hvort þeir hafi fengið uppsagnarbréf eða hvort von sé á því á föstudaginn. Það er óþægilegt að vita ekkert um tímalínu eða hvað framtíðin býr í skauti sér. Þetta snýst þó ekki eingöngu um okkur starfsmennina og framtíð okkar. Þetta snýst fyrst og fremst um skjölin sjálf og þá ábyrgð sem safnið ber á vörslu skjala og að almenningur hafi aðgang að þeim. Við erum alla daga að taka við skjölum og gefa loforð að varðveisla þeirra sé trygg hjá okkur og aðgangur hjá okkur sé í samræmi við lög. Þetta á bæði við um opinber skjöl og einkaskjalasöfn, jafnt viðskiptasamninga, barnaverndarmál, greiningargögn og einkaskjalasöfn sem fólk kemur með til okkar í þeirra trú, að það sé hægt að treysta okkur á Borgarskjalasafni. Skjalasafn þarf að vera stöðug stofnun sem fólk treystir. Það er borgarráð sem mun ákveða á fundi 2. mars hvort Borgarskjalasafnið verði lagt niður. Ákvörðunin er þeirra. Höfundur er borgarskjalavörður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Reykjavík Borgarstjórn Söfn Lokun Borgarskjalasafns Mest lesið Fermingarbörn, sjálfsfróun og frjálslyndisfíkn Einar Baldvin Árnason Skoðun Þegar sannleikurinn krefst vísinda – ekki tilfinninga Liv Åse Skarstad Skoðun Bætt staða stúdenta - en verkefninu ekki lokið Kolbrún Halldórsdóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir Skoðun Vændi og opin umræða Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Jesú er hot! Þorsteinn Jakob Klemenzson Skoðun Evra vs. króna. Áhugaverð viðbrögð við ótrúlegum vaxtamun Dagur B. Eggertsson Skoðun Ekki framfærsla í skilningi laga Eva Hauksdóttir Skoðun 4.865 börn sem bíða í allt að fjögur ár Ragnheiður Dagný Bjarnadóttir Skoðun Hvað var RÚV að hvítþvo – og til hvers? Hilmar Kristinsson Skoðun Fimm skipstjórar en engin við stýrið Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar sannleikurinn krefst vísinda – ekki tilfinninga Liv Åse Skarstad skrifar Skoðun Fimm skipstjórar en engin við stýrið Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Fermingarbörn, sjálfsfróun og frjálslyndisfíkn Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Ekki framfærsla í skilningi laga Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Bætt staða stúdenta - en verkefninu ekki lokið Kolbrún Halldórsdóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Evra vs. króna. Áhugaverð viðbrögð við ótrúlegum vaxtamun Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hverjar eru hinar raunverulegu afætur? Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Vændi og opin umræða Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Jesú er hot! Þorsteinn Jakob Klemenzson skrifar Skoðun Kíkt í húsnæðispakkann Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Óbærilegur ómöguleiki íslenskrar krónu Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Íslenskir Trumpistar Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun „Sofðu rótt í alla nótt“ – Um stöðu íslenskunnar, lestrarmenningu og ákall til okkar sjálfra Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Í hvað á orkan að fara? Hallgrímur Óskarsson skrifar Skoðun Vegatálmar á skólagöngunni Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar Evrópa fer á hnén og kallar það vináttu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað var RÚV að hvítþvo – og til hvers? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnvöld mega ekki klúðra nýju vaxtaviðmiði Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Að vera húsbyggjandi Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Hærri vörugjöld, lægri samkeppnishæfni Arnar Þór Hafsteinsson skrifar Skoðun Að einfalda veruleikann og breyta öllu í pólitískt fóður Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Tími til kominn Berglind Friðriksdóttir,Gunnsteinn R. Ómarsson,Hrönn Guðmundsdóttir,Sigfús Benóný Harðarson,Vilhjálmur Baldur Guðmundsson skrifar Skoðun Hvers virði er ég ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun RÚV brýtur á börnum Guðbjörg Hildur Kolbeins skrifar Skoðun Framtíðarsýn Íslands: Raunsæ tækni, græn orka og friður fyrir hugann Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Ég ætlaði aldrei að hætta í útgerð“ Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Frjósemisvandi – samfélagsleg ábyrgð og stuðningur María Rut Baldursdóttir,Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin fellir niður jafnrétti íþrótta og gerir vont verra Unnar Már Magnússon skrifar Skoðun 4.865 börn sem bíða í allt að fjögur ár Ragnheiður Dagný Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gellupólitík Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Bætt staða stúdenta - en verkefninu ekki lokið Kolbrún Halldórsdóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir Skoðun
Skoðun Bætt staða stúdenta - en verkefninu ekki lokið Kolbrún Halldórsdóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun „Sofðu rótt í alla nótt“ – Um stöðu íslenskunnar, lestrarmenningu og ákall til okkar sjálfra Gunnar Már Gunnarsson skrifar
Skoðun Tími til kominn Berglind Friðriksdóttir,Gunnsteinn R. Ómarsson,Hrönn Guðmundsdóttir,Sigfús Benóný Harðarson,Vilhjálmur Baldur Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðarsýn Íslands: Raunsæ tækni, græn orka og friður fyrir hugann Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Frjósemisvandi – samfélagsleg ábyrgð og stuðningur María Rut Baldursdóttir,Sigríður Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin fellir niður jafnrétti íþrótta og gerir vont verra Unnar Már Magnússon skrifar
Bætt staða stúdenta - en verkefninu ekki lokið Kolbrún Halldórsdóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir Skoðun