Draymond fór í fýlu inn á vellinum í miðjum NBA-leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2023 17:00 Draymond Green er leiðtogi Golden State Warriors liðsins en hefur átt mjög furðulegt tímabil. Getty/ David Berding Draymond Green á að vera einn reyndasti leikmaður Golden State Warriors en gerðist sekur um að hafa sér eins og smákrakki í tapleik liðsins á móti Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta.
Titilvörn Golden State er ekki að ganga eins vel og margir bjuggust en liðið tapaði þarna sínum öðrum leik í röð eftir að hafa steinlegið á móti Los Angeles Lakers liðinu í leiknum á undan. Lykilmenn eins og Stephen Curry hafa verið mikið meiddir og þá virðist leiðtoginn Draymond Green vera í litlu jafnvægi. Green fór þannig í fýlu í miðjum leik á móti Thunder þegar Jordan Poole gaf ekki boltann á hann. Green sveiflaði höndum og hætti síðan að spila. Sending sem átti að fara á hann fór því beint í hendur mótherjanna. Green var hvergi sjáanlegur þegar Thunder liðið fór í sókn og það var ótrúlegt að sjá reynslubolta og atvinnumann hafa sér svona. Þetta minnti líka á annað atvik á milli Green og Poole. Það varð frægt fyrir tímabil þegar Green rést á liðsfélaga sinn Poole í æfingabúðum liðsins. Green var sendur í leyfi en kom fljótlega aftur til baka. Steve Kerr talaði um það eftir leik að liðið hafi farið úr sambandi eftir þetta fýlukast Green sem kom í öðrum leikhluta. Það má sjá þetta atvik með því að fletta í færslunni hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Sports Blog Nation (@sbnation)
NBA Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Sport Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Íslenski boltinn Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Fótbolti Fleiri fréttir Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Sjá meira